Góðan dag!
Lög nr. 81/2003 um fjarskipti tóku gildi í dag. Lögin má lesa á vef Alþingis, www.althingi.is, á slóðinni http://www.althingi.is/lagas/nuna/2003081.html
Sérstaklega vil ég benda listamönnum á nýja grein um "Óumbeðin fjarskipti" sem taka einnig á tölvupósti (IX kafli (Vernd persónuupplýsinga og friðhelgi einkalífs), 46. grein).
46. gr. Óumbeðin fjarskipti.
Notkun sjálfvirkra uppkallskerfa, símbréfa eða tölvupósts fyrir beina markaðssetningu er einungis heimil þegar áskrifandi hefur veitt samþykki sitt fyrir fram.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er heimilt að nota tölvupóstfang við sölu á vörum eða þjónustu fyrir beina markaðssetningu á eigin vörum eða þjónustu ef viðskiptavinum er gefinn kostur á að andmæla slíkri notkun tölvupóstfanga þeim að kostnaðarlausu þegar skráning á sér stað og sömuleiðis í hvert sinn sem skilaboð eru send hafi viðskiptavinurinn ekki þegar í upphafi hafnað slíkri notkun.
Að öðru leyti en mælt er fyrir í 1. og 2. mgr. eru óumbeðin fjarskipti í formi beinnar markaðssetningar óheimil til þeirra áskrifenda sem óska ekki eftir að taka á móti þeim.
Óheimilt er að senda tölvupóst sem þátt í beinni markaðssetningu þar sem nafn og heimilisfang þess sem stendur að markaðssetningu kemur ekki skýrt fram.
Notendur sem nota almenna talsímaþjónustu sem lið í markaðssetningu skulu virða merkingu í símaskrá sem gefur til kynna að viðkomandi áskrifandi vilji ekki slíkar hringingar í símanúmer sitt.
Sem þýðir (skv. minni túlkun): Bein markaðssetning með tölvupósti er óheimil. Ef þú gefur upp netfang er ekki heimilt að nota það til beinnar markaðssetningar nema þér hafi verið gefinn kostur á að sleppa við slíkar sendingar (þér að kostnaðarlausu).
Um viðurlög er fjallað í 74. grein laganna (1. - 3. mgr.)
--
Kveðja,
Tolli
tolli(a)tol.li
Komið þið sælir gúrúar
Ég heiti Veturliði Þór Stefánsson og var rétt í þessu að skrá mig inn á spjall listann.
Ég er laganemi og er núna að vinna að lokaritgerð mína í lögfræði sem ber vinnuheitið "Bein markaðssetning í ljósi persónu- og neytendaverndar". Í ritgerðinni fjalla ég um það lagaumhverfi sem gildir varðandi beina markaðssetning, þar á meðal persónuuplýsingalögin, húsgöngu- og fjarsölulögin sem og fjarskiptalögin. Ég mun einnig fjalla í ritgerðinni um tölvuruslpóst (SPAM).
Ég sá á póstlistanum að einn ykkar hefur kært til lögreglu meint SPAM hjá vefhotel.com. Ég ætlaði bara að forvitnast um það hvernig það mál stæði og hvort þið gætuð bent mér á fleiri slík mál sem upp hafa komið. Sérstaklega væri gott ef þið gætuð bent mér á islensk fyrirtæki sem hafa verið að brjóta af sér.Einnig hvort þið getið bent mér á praktísk atriði í tengslum við SPAM sem að þið telji að þurfi að taka.
Það eru nokkur atriði sem mér þætti vænt um að fá frekari upplýsingar um sbr. t.d.:
1. Hafið þið kynnt ykur hvaða áhrif lög um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu nr. 30/2002 hafa á starfsemi ykkar varðandi SPAM?
2. Notkun á röngum nöfnum eða nöfnum annarra aðila í From kassanum á tölvupósti. Eru brögð að slíku hjá íslenskum aðilum.
3. Hvernig bregðist þið almennt við SPAMMI?
4. Hvert hafið þið snúið ykkur til að kvarta undan SPAMMI?
5. Hvaða viðbrögð hafið þið fengið við kvörtunum ykkar?
Endilega tjáið ykkur um þetta eða sendið mér línu á póstfangið veturlidi(a)simnet.is
KV. VÞS
Ég segi þeim sem að senda spamið að halda kjafti annars kæri ég hann.
Kveðja,
Björn Þór Karlsson
Netföng: bjossi(a)bjossi.is / bjornthor(a)bjornthor.com
Vefsíður: http://www.bjossi.is / http://www.bjornthor.com
Sími: 691-9818
-----Original Message-----
From: gurus-bounces(a)lists.isnic.is [mailto:gurus-bounces@lists.isnic.is]
On Behalf Of gurus-request(a)lists.isnic.is
Sent: 19. júlí 2003 12:00
To: gurus(a)lists.isnic.is
Subject: Gurus Digest, Vol 3, Issue 1
Send Gurus mailing list submissions to
gurus(a)lists.isnic.is
To subscribe or unsubscribe via the World Wide Web, visit
http://lists.isnic.is/mailman/listinfo/gurus
or, via email, send a message with subject or body 'help' to
gurus-request(a)lists.isnic.is
You can reach the person managing the list at
gurus-owner(a)lists.isnic.is
When replying, please edit your Subject line so it is more specific
than "Re: Contents of Gurus digest..."
Today's Topics:
1. [Gurus]Fyrirspurn var?andi SPAM og fleira (Veturli?i Stef?nsson)
2. Re: Fyrirspurnvar?andiSPAM og fleira (Gu?mundur D.Haraldsson)
----------------------------------------------------------------------
Message: 1
Date: Fri, 18 Jul 2003 19:04:07 -0000
From: Veturli?i Stef?nsson<veturlidi(a)simnet.is>
Subject: [Gurus]Fyrirspurn var?andi SPAM og fleira
To: <gurus(a)lists.isnic.is>
Message-ID: <001e01c34d5f$5cefb0f0$80959d9d@vetur>
Content-Type: text/plain; charset="iso-8859-1"
Komið þið sælir gúrúar
Ég heiti Veturliði Þór Stefánsson og var rétt í þessu að skrá mig inn á
spjall listann.
Ég er laganemi og er núna að vinna að lokaritgerð mína í lögfræði sem
ber vinnuheitið "Bein markaðssetning í ljósi persónu- og
neytendaverndar". Í ritgerðinni fjalla ég um það lagaumhverfi sem gildir
varðandi beina markaðssetning, þar á meðal persónuuplýsingalögin,
húsgöngu- og fjarsölulögin sem og fjarskiptalögin. Ég mun einnig fjalla
í ritgerðinni um tölvuruslpóst (SPAM).
Ég sá á póstlistanum að einn ykkar hefur kært til lögreglu meint SPAM
hjá vefhotel.com. Ég ætlaði bara að forvitnast um það hvernig það mál
stæði og hvort þið gætuð bent mér á fleiri slík mál sem upp hafa komið.
Sérstaklega væri gott ef þið gætuð bent mér á islensk fyrirtæki sem hafa
verið að brjóta af sér.Einnig hvort þið getið bent mér á praktísk atriði
í tengslum við SPAM sem að þið telji að þurfi að taka.
Það eru nokkur atriði sem mér þætti vænt um að fá frekari upplýsingar um
sbr. t.d.:
1. Hafið þið kynnt ykur hvaða áhrif lög um rafræn viðskipti og aðra
rafræna þjónustu nr. 30/2002 hafa á starfsemi ykkar varðandi SPAM?
2. Notkun á röngum nöfnum eða nöfnum annarra aðila í From kassanum á
tölvupósti. Eru brögð að slíku hjá íslenskum aðilum.
3. Hvernig bregðist þið almennt við SPAMMI?
4. Hvert hafið þið snúið ykkur til að kvarta undan SPAMMI?
5. Hvaða viðbrögð hafið þið fengið við kvörtunum ykkar?
Endilega tjáið ykkur um þetta eða sendið mér línu á póstfangið
veturlidi(a)simnet.is
KV. VÞS