Góðan daginn.
Það sem vekur forvitni mína núna, er hvort möguleiki sé að fá
Usenet-feed frá Usenettuðum aðila, til okkar hérna hjá Frisk Software?
Kveðja,
Einar Indriðason
einari(a)f-prot.com
Sælnú
Ég er nýkominn á þennan lista og nú vantar mig ráð. Þannig er að ég er
með Linux vél á netinu hjá mér sem ég fékk ábendingu um að væri smituð
af ormi þeim sem nefndur er í efnislínu þessa pósts (Apache/mod_ssl
Worm). Þegar ég fór að lesa um hegðun hans þá passaði það alltsaman. Ég
fór í gegnum þær leiðbeiningar sem ég fann við að uppfæra pakka á
vélinni hjá mér.
Þessar upplýsingar fann ég á
http://rhn.redhat.com/errata/RHSA-2002-160.html .
Nú er spurningin sú, hvernig veit ég fyrir víst hvort ég er laus við
þennan ófögnuð af vélinni hjá mér?
Þekkir ekki einhver leið til sjá þetta.
Kveðjur bestar
----------------------------------------------------------
Adam Óskarsson - Kerfisstjóri VMA - adam(a)vma.is