Sælir félagar,
Þessa stundina og síðustu viku hef ég verið staddur á RIPE fundum í Prag, og
ég heyrði það utan að mér í hádeginu í gær frá aðila sem ég læt ógetið að
stjórnvöld í svíþjóð sem hafa verið að nota Lotus Notes mjög hamingjusamlega
í þónokkurn tíma eru mjög fúlir þessa dagana, málið er víst það að NSA sem
fyrir þá sem ekki vita er frekar leiðinlegt öryggisfyrirbæri í bandaríkjunum
er víst með bakdyr inn í Lotus Notes.
Ég veit ekki hver þessi aðgangur er eða hvernig og ég veit ekki einusinni hvort
þetta er satt svo þið verðið að vinna út frá þessu sjálfir.
Óli
--
Ólafur Osvaldsson
Kerfisstjóri
Internet á Íslandi hf.
Sími: 525-5291
Email: oli(a)isnic.is