Daginn,
Í vikunni var fyrsta 100 Gbps tengingin við RIX virkjuð. Það er RÚV sem
tengist á 100 Gbps við tengipunktinn á Mílu hótel. Það er linkur á
sambandinu, en eins og sjá má á umferðargröfum þá er ekki komin nein
umferð á sambandið. Vonandi sjáum við bráðlega notkun á því sambandi
enda mjög spennandi tímamót í sögu RIX.
Við höfum staðið okkur mjög illa í viðhaldi á rix.is heimasíðunni, enda
lítur hún út eins og eitthvað sem var hannað á tímum Netscape Navigator.
Það t.d. kemur ekki fram þar að RIX hefur lengi boðið upp á samnýtingu á
tengingum (channel bonding). Nova er í dag með 2x10G tengingar við bæði
Tæknigarð og Katrínartún. Þá er greitt fyrir hvert port sem er notað, en
á móti öðrum og í lista yfir tengda aðila kemur bara fram ein tenging.
Samnýting porta er studd á öllum stöðum, með eða án LACP.
Nýr RIX vefur er á dagskrá, en það er að ýmsu að huga. Það hefur verið
óskað eftir betri umferðargröfum, en eitt sem hamlar okkur þar er að
gömlu Cisco Nexus svissarnir styðja ekki sFlow, en þær lausnir sem við
höfum verið að skoða fyrir gröf styðja bara sFlow. Mögulega yrðu fyrst
um sinn bara gerð gröf fyrir nýju svissana og þær tengingar sem þar eru.
Einnig hefur verið spurt út í möguleikann á því að RIX setji upp og reki
rútuþjóna (route servers) eins og eru á flestum stærri IX'um. Það myndi
klárlega hjálpa þeim sem eiga erfitt með að viðhalda samböndum og
filterum fyrir hvert og eitt peering samband á RIX, en á móti kemur að
þá færist ábyrgðin og vinnan yfir á RIX. Viðræður um þetta mál hafa sýnt
að sumir vantreysta rútuþjónum eftir slæma reynslu af þeim. Ef allir
tengdir aðilar nýta sér bara rútuþjón fyrir sambönd þá þarf lítið út af
að bregða til að stoppa stóran hluta af umferðinni um RIX, þannig að við
stígum varlega til jarðar með þetta.
Hvaða skoðun hefur fólk á forgangsröðun?
.einar
Daginn,
100G svissarnir eru komnir upp í Tæknigarði og í Múlastöð. Samtenging
við þá verður virkjuð á föstudag eða mánudag, en við erum búin að
uppfæra rix.is síðuna og hægt er að sækja um 100G port í dag.
100G svissarnir eru Juniper QFX5120-32C og ef aðilar skaffa sína eigin
QSFP28 þá fellur stofngjaldið niður.
Við listum ekki verð fyrir 25/40G port, þar sem við gerum ekki ráð fyrir
mikilli eftirspurn, en ef áhugi er fyrir hendi þá getum við útvegað þau
í Tæknigarði og í Múlastöð.
.einar
ISNIC - RIX
Daginn,
Senn líður að því að hægt verður að kaupa 100G tengingar við RIX. Eins
og fram hefur komið víða þá verður boðið upp á 100G port í Tæknigarði og
á hótelinu í Múlastöð. Greinilegt er að áhugi er á portum í Múla, en
minni áhugi á tengingum í Tæknigarði. Ef reynslan verður sú að ekki er
neinn áhugi á að tengjast 100G í Tæknigarði þá munum við endurskoða þá
staðsetningu.
Við erum á fullu að koma búnaðinum upp og líklega verður hægt að bjóða
100G tengingar í byrjun febrúar.
Mánaðargjald fyrir 100G tengingar verður *39.950 kr.* án vsk. Stofngjald
helst í hendur við verð á ljósbreytum, en ljóst er að ef verið er að
tengjast innan salar í Múla þá er sá kostnaður 10-15 þús. Ef aðilar
vilja sjálfir skaffa ljósbreytur sem passa í Juniper QFX þá er það
frjálst og þá fellur stofngjaldið niður.
Við höfðum ekki gert ráð fyrir miklum áhuga á 25/40G tengingum, en það
væri gaman að heyra ef sá áhugi er til staðar.
Verðskráin á rix.is verður uppfærð á næstu dögum.
.einar
RIX