Ekki er að sjá að póstlistanum að þú fáir þetta magn af ruslpósti, þar
eru þá greinilega valdir aðilar sem þið kjósið að birta ásakanir um
ásamt persónulegum pósti þeirra. En mig undrar svar þitt, það er ekki
saman að jafna snerpu og mitt fyrirtæki. Af svarinu giska ég á að þú
sért mjög ungur (að árum) og bendi ég þér því á að þér er frjálst að
nota block listann minn þér til stuðnings í baráttunni við ruslpóst,
hann er birtur á netinu án ásakana og án þess að birta persónulegan póst
í óleyfi sendanda enda væri slíkt hátterni lögbrot auk þess að vera
siðlaust, eða eigum við að birta á internetinu nöfn allra sem ásakaðir
eru af hverjum sem er um einhver lögbrot ?
Mig grunar að svar þitt yrði, miðað við það sem á undan er gengið,
eitthvað á þá leið að þú teldir það í lagi í þeim tilfellum sem þú
ákveður það sjálfur, annars ekki.
Ég er á annari skoðun.
>Þann 10/4/2005, skrifaði "Björn Davíðsson" <bjossi(a)snerpa.is>:
>
>>Vá! - plögg plögg... - ef þú vilt í alvöru pissukeppni þá hafnar Snerpa
>>yfir 600 spam-póstum á klukkutíma. :-)
>>
>>PS: Þið hjá Persónuvernd fáið ekki fleiri afrit frá mér, þið getið
>> skráð ykkur á abuse-l listann ef þið viljið ekki missa af
>> svona 'persónulegum' samskiptum :-)
>> Uppl. á: http://lists.isnic.is/mailman/listinfo/abuse-l
>>
>>kk,
>>-bd-
>>--
>>=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-==-=-=-=-=
>>Bjorn Davidsson - R&D dept. Skype: bjossi_lt
>>Snerpa ISP - Isafjordur, Iceland. Tel: 520-4000
>>bjossi(a)snerpa.is - www.snerpa.is - GSM: 840-4008
>>Linux user # 18150 - counter.li.org
>>
>>
>>
>>
Sæll Jón Jósef.
Ef þú hefðir skoðað hverjum öðrum hefðu verið send samskiptin um leið og
þér barst kvörtunin hefðirðu séð:
> From: Olafur Osvaldsson [mailto:oli at isnic.is]
> Sent: 27. mars 2005 19:47
> To: abuse at islandssimi.is
> Cc: jonb at it-cons.com; abuse-l at lists.isnic.is; hostmaster at
> isnet.is Subject: (SPAM Tilkynning) nemendur.net
Hafandi séð að aðrir fengu afrit af póstinum, þ.m.t. kerfisstjórar hjá
Og Vodafone og þeir sem hafa skráð sig á lista yfir umræðu og kvartanir
vegna (meintra) ólöglegra tölvupóstsendinga þá hefði þér verið í lófa
lagið að fara fram á að samskiptin væru í trúnaði og ekki send öðrum.
Þú kaust hinsvegar að ónáða fjöldann allan af fólki með ruslpósti og
þeir sem t.d. vinna við að vernda notendur netveitna gegn honum hafa
eðlilega hagsmuni af því að vita af stöðu mála. Þess vegna senda þeir
hvorum öðrum afrit á opinberum póstlista og geta þ.a.l. brugðist við
aðstæðum, t.d. þegar sá sem sendir ruslpóst þykist ekki skilja lögin og
notkunarskilmála netveitu sinnar.
> Isnic birtir án þess að ég hafði um það hugmynd, persónulegan póst sem
> ég sendi þeim.
> Hér er dæmi:
> http://lists.isnic.is/pipermail/abuse-l/2005-March/000047.html
>
> Hvergi var þess getið, að þessar tölvupóstsendingar, sem sendar eru
> til einstaklinga hjá Isnic, yrðu birtar á netinu, ....
Þú sendir ekki einstaklingi hjá Isnic póst, heldur svaraðir þú
tölvupósti sem var greinilega merktur viðtakendum, þ.m.t. póstlistanum
abuse-l sem einnig er aðgegnilegur á vefnum.
Meðal viðtakenda var abuse-l at lists.isnic.is sem ekki er erfitt að sjá
að er póstlisti. Enda virðist sem þú hafir gert þér grein fyrir þessu
sem er væntanlega forsenda fyrir því að þú ert að senda þennan póst nú.
Hvergi í póstinum sem þú sendir tekur þú fram að um persónulegan póst sé
að ræða og/eða beri að skoða hann sem trúnaðarmál sem hefði verið
eðlilegt ef þú vildir forðast að afrit af svari væri sent á póstlistann.
Í þessum pósti sem þú sendir Persónuvernd, tekur þú ekki fram að hann sé
einnig til birtingar á netinu, sbr. þennan link:
http://lists.isnic.is/pipermail/abuse-l/2005-September/000050.html
> _______________________________________________
> Abuse-l mailing list
> Abuse-l(a)lists.isnic.is
> http://lists.isnic.is/mailman/listinfo/abuse-l
--
=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-==-=-=-=-=
Björn Davíðsson
Snerpa ISP - Isafjordur, Iceland. Tel: 520-4000
bjossi(a)snerpa.is - www.snerpa.is - GSM: 840-4008
Linux user # 18150 - counter.li.org
Sæll aftur Jón Jósef.
> Hér er um að ræða að persónulegur póstur sem sendur var einum manni,
> Ólafi Osvaldssyni, sé dreift um internetið.
> Eins og glöggt má sjá sendi ég póstinn á hann persónulega með engum
> afritum og ekki á póstlistann eins og þú heldur fram.
Ég hélt því ekki fram. Ég hélt því fram að í þessum tilteknu samskiptum
hefði þér mátt vera ljóst að Ólafur sendir afrit á listann enda kom efni
þeirra (meintar spam-sendingar frá þér) fleirum en honum við.
> En þess utan, þarf að taka fram að efni póstlista sé birt á
> internetinu.
Nei. Reyndar er vísað til þess samt sem áður - en einungis á pósti sem
dreift er með póstlistanum.
> Sjálfur er ég með yfir 5.000 póstlista á mínum vefum, efni þeirra er
> að sjálfsögðu ekki birt á netinu enda er slíkt óvenjulegt og ber því
> að upplýsa um það.
Nei. Það er ekki óvenjulegt að birta efni póstlista á vefnum. Ekki síðan
ca. 1994.
> Mín SPAM vörn lokar fyrir yfir 106 milljón IP tölur
> http://www.it-cons.com/spam/ þúsundir léna og póstfanga sem ég birti
> ekki og síar auk þess út milli 100 og 600 SPAM pósta á dag.
Vá! - plögg plögg... - ef þú vilt í alvöru pissukeppni þá hafnar Snerpa
yfir 600 spam-póstum á klukkutíma. :-)
PS: Þið hjá Persónuvernd fáið ekki fleiri afrit frá mér, þið getið
skráð ykkur á abuse-l listann ef þið viljið ekki missa af
svona 'persónulegum' samskiptum :-)
Uppl. á: http://lists.isnic.is/mailman/listinfo/abuse-l
kk,
-bd-
--
=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-==-=-=-=-=
Bjorn Davidsson - R&D dept. Skype: bjossi_lt
Snerpa ISP - Isafjordur, Iceland. Tel: 520-4000
bjossi(a)snerpa.is - www.snerpa.is - GSM: 840-4008
Linux user # 18150 - counter.li.org
Góðan dag.
Isnic birtir án þess að ég hafði um það hugmynd, persónulegan póst sem ég
sendi þeim.
Hér er dæmi: http://lists.isnic.is/pipermail/abuse-l/2005-March/000047.html
Hvergi var þess getið, að þessar tölvupóstsendingar, sem sendar eru til
einstaklinga hjá Isnic, yrðu birtar á netinu, og því hlýtur þetta að
vera frekar gróft brot á persónuvernd, líkt og ef persónulegt símtal sé
tekið upp og dreift á Internetinu.
Kveðja
Jón Jósef Bjarnason