Tillaga að breytingu skráningarreglna .is
Stjórn ISNIC hefur ákveðið að leggja til smávægilega breytingu á reglum sínum um skráningu léna undir .is. Röksemdum þessara breytinga er lýst á vef ISNIC, sjá https://www.isnic.is/is/news/view?id=499
Eftirfarandi breytingar eru lagðar til
4. grein segir m.a.
"16. Lokun: Tilvísanir á lén eru fjarlægðar úr höfuðléni en lénið áfram skráð í rétthafaskrá. Við lokun verður lénið óvirkt m.t.t. allrar virkni á Netinu. Lén sem er lokað í 60 daga samfellt er afskráð."
verði eftir breytingu:
"16. Lokun: Tilvísanir á lén eru fjarlægðar úr höfuðléni en lénið áfram skráð í rétthafaskrá. Við lokun verður lénið óvirkt m.t.t. allrar virkni á Netinu. Lén sem er lokað í 30 daga samfellt er afskráð."
23. grein er:
"Frá lokun léns hefur rétthafi 60 daga til að gera viðeigandi ráðstafanir og fá lénið opnað. Hafi lén verið lokað í 60 daga er það afskráð, réttur yfir léni fellur niður og lénið verður laust til skráningar á ný. Tengiliður rétthafa eða rétthafi léns getur sagt léni upp. Í framhaldi af uppsögn er lén afskráð og verður laust til skráningar á ný."
verði eftir breytingu:
"Frá lokun léns hefur rétthafi 30 daga til að gera viðeigandi ráðstafanir og fá lénið opnað. Hafi lén verið lokað í 30 daga er það afskráð, réttur yfir léni fellur niður og lénið verður laust til skráningar á ný. Tengiliður rétthafa eða rétthafi léns getur sagt léni upp. Í framhaldi af uppsögn er lén afskráð og verður laust til skráningar á ný."
Vinsamlega komið á framfæri athugasemdum ef einhverjar eru...
-- Marius Olafsson ISNIC ltd. https://www.isnic.is Katrinartun 2 Reykjavik ICELAND marius@isnic.is
participants (1)
-
Marius Olafsson