Góðan daginn,
Eins og þið munið vonandi þá stóð til að hinar nýju reglur Samræmdar
vefmælingar tækju fullt gildi 1. mars n.k., en í ljósi þess að erfitt
var að fá alla til að taka afstöðu til reglnanna verður ekki mögulegt
að standa við þær áætlanir.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir þá hafa visir.is ekki enn tekið
afstöðu til nýju reglanna, að öðru leyti en að taka fram að öll
mótstaða sem þeir sýndu reglubreytingunum síðasta sumar stendur enn.
Í ljósi þess að þeir hafa ekki sýnt vilja til að koma með tillögur að
betrumbótum eða að vinna með Samráðshópnum að neinu leyti þá legg ég
þessar reglur í síðasta skipti fyrir Samráðshópinn hér. Gangi þær í
gegn munu þær taka gildi 1. mars en veittur verður 3 mánaða
aðlögunarfrestur sem þýðir að allir vefir verða að uppfylla öll
skilyrðin þann 1. júní n.k.
Reglurnar verða vel kynntar öllum vefjum sem taka þátt í Samræmdri
vefmælingu, en aðalbreytingin er eftir sem áður krafan um að allar
vefsíður sem teljast til sama vefs verða að deila sama yfirléni (2nd
level domain).
Vinsamlegast svarið þessu bréfi með ykkar atkvæði á einar(a)isnic.is,
öll bréf á vefmaeling(a)lists.isnic.is berast til allra á póstlistanum.
kv. Einar Bjarni Halldórsson
Internet á Íslandi hf. - Modernus