Góðan daginn,
Vegna lista Samræmdar vefmælingar sem birtur er í dag, 24. ágúst skal
benda á að tölur visir.is hafa verið fjarlægðar vegna brota á reglum.
Teljarakóði visir.is rataði inn á síður Blogcentral.is, en vefirnir
voru áður taldir saman þar til reglunum var breytt. Búið var að taka
út mælinguna á Blogcentral, en var svo skyndilega sett inn aftur 21.
ágúst.
Olli þetta mikilli notendafjölgun hjá visir.is og þar sem þetta er
skýrt reglubrot og hafði verið tekið á áður var talið rétt að draga
birtinguna til baka og fjarlægja tölur visir.is af listanum. Þar til
teljarakóðinn hefur verið tekinn út af síðum Blogcentral mun visir.is
ekki birtast á listanum.
kv. Einar Halldórsson
Internet á Íslandi hf. - Modernus