Spam fr� kassi.is og fleirum
Sælir, ég minnist þess ekki nokkurn tíman að hafa skráð mig á kassi.is, en nú var ég að fá spam frá þeim sem var eitthvað þríhyrninga-scam: "vilt þú stefna að áhyggjulausu lífi og meiri tíma fyrir fjölskylduna ?" "Kassi.is hefur hafið samstarf við mjög áræðanlegt fyrirtæki í Bandaríkjunum sem hefur það að leiðarljósi að hjálpa fólki að öðlast fjárhagslegt sjálfstæði og frelsi." Ég hringdi í framkvæmdastjóra Kassi.is og spurði hann hvers vegna ég væri að fá þetta, hann svaraði því til að mjög oft væri fólk að skrá netföng annars fólk á póstlistann þeirra. Ég spurði einnig fyrir hönd kunningja míns sem hefur notað þjónustu kassi.is og sagði manninum sem var að hvergi hefði verið hakað að það mætti senda viðkomandi póst. Þá svaraði hann því til að þeir væru nýbúnir að flytja gögnin á milli tölva og þetta hefði eitthvað "skolast til".. Það er sorglegt að fólki finnst þetta bara allt í lagi..., að harvesta netföng, að hunsa það þegar fólk skráir sig og tekur merkið úr "það má senda mér póst", og senda póst um eitthvað alls óskylt þeirri starfsemi sem þeir gefa sig út fyrir að vera í. Nýleg dæmi um svipaða hluti hjá mér eru að í gær varð ég allt í einu orðinn "Viðskiptavinur Netskila", ég veit ekkert um þetta fyrirtæki en þeir sendu mér samt póst með kynningu á breyttri þjónustu. Gamnaser.com hefur verið að kynna fyrir mér nýja íslenska klámheimasíðu... Etc. etc... Hvernig er hægt að uppfræða þessa aðila ?, þegar ég hef fengið íslenskt spam hef ég alltaf reynt að grafa upp símanúmer og hringt í viðkomandi fyrirtæki, svörin eru alltaf á svipaðan veg, menn skilja bara hvað ég sé að birsta mig yfir þessu, og ljúga bara einhverju til að losna úr símanum... -- Veigar Freyr Jökulsson veigar@tviund.is
Sælir, Veigar Freyr Jökulsson, Mon, Feb 24, 2003 at 01:06:28PM -0000 :
Sælir, ég minnist þess ekki nokkurn tíman að hafa skráð mig á kassi.is, en nú var ég að fá spam frá þeim sem var eitthvað þríhyrninga-scam:
[...]
Hvernig er hægt að uppfræða þessa aðila ?, þegar ég hef fengið íslenskt spam hef ég alltaf reynt að grafa upp símanúmer og hringt í viðkomandi fyrirtæki, svörin eru alltaf á svipaðan veg, menn skilja bara hvað ég sé að birsta mig yfir þessu, og ljúga bara einhverju til að losna úr símanum...
Að mínu áliti er það augljóslega sterkur leikur að hringja í viðkomandi og skammast. Ef nógu margir gera það skilja þeir væntanlega hversu mikið "negatívt goodwill" þeir eru að skapa sér (hver man ekki eftir Halo?). Það næsta sem hægt væri að gera væri að senda kvörtun til uplinks viðkomandi, eða umsjónarmanns póstþjónsins sem var notaður við sendinguna. Svona fyrirtæki reka sjaldanast eigin póstþjóna sjálfir, heldur nota því sem næst undantekningarlaust póstþjóna innanlands Internetþjónustuaðila. Þess má geta að hver og einn einasti ISP á Íslandi (Landssíminn, Íslandssími, RHnet og Lína.Net) hefur notkunarskilmála gegn spami. Íslenski netþjónustumarkaðurinn er ekki það stór að svona mál fari ekki í einhvern farveg, sérstaklega ef "community'ið" er látið vita af framgangi málsins (t.d. með því að cc'a kvörtunarbréf á gurus listann). Þess má til samanburðar geta, að ef ISP í Bandaríkjunum vill ekki peera við annan er það vinsælt að níða hann á NANOG listanum, og yfirleitt hefur það áhrif, þó er það mun stærra umhverfi. -- Kristófer Sigurðsson Tel: +354 525 4103 Netsérfræðingur/Network specialist E-mail: ks@rhi.hi.is Reiknistofnun HÍ/University of Iceland Public PGP key: finger -l ks@herdubreid.rhi.hi.is
Kristofer, Þann 24. febrúar 2003, ritaði Kristofer Sigurdsson eitthvað á þessa leið:
"community'ið" er látið vita af framgangi málsins (t.d. með því að cc'a kvörtunarbréf á gurus listann). Þess má til samanburðar geta, að ef ISP
Mig langar til að biðja ykkur vegna þess magns tilkynninga sem geta komið út frá svona SPAMI að senda þær ekki á gurus listann, ef þörf er á svona tilkynningalista þá skal ég glaður setja upp sér lista fyrir það. /Óli -- Ólafur Osvaldsson Kerfisstjóri Internet á Íslandi hf. Sími: 525-5291 Email: oli@isnic.is
Óli, Olafur Osvaldsson, Mon, Feb 24, 2003 at 01:36:03PM +0000 :
Kristofer,
[...}
Mig langar til að biðja ykkur vegna þess magns tilkynninga sem geta komið út frá svona SPAMI að senda þær ekki á gurus listann, ef þörf er á svona tilkynningalista þá skal ég glaður setja upp sér lista fyrir það.
Jamm, rétt athugað. -- Kristófer Sigurðsson Tel: +354 525 4103 Netsérfræðingur/Network specialist E-mail: ks@rhi.hi.is Reiknistofnun HÍ/University of Iceland Public PGP key: finger -l ks@herdubreid.rhi.hi.is
participants (3)
-
Kristofer Sigurdsson
-
Olafur Osvaldsson
-
Veigar Freyr J�kulsson