Sælir, ég minnist þess ekki nokkurn tíman að hafa skráð mig á kassi.is, en nú var ég að fá spam frá þeim sem var eitthvað þríhyrninga-scam: "vilt þú stefna að áhyggjulausu lífi og meiri tíma fyrir fjölskylduna ?" "Kassi.is hefur hafið samstarf við mjög áræðanlegt fyrirtæki í Bandaríkjunum sem hefur það að leiðarljósi að hjálpa fólki að öðlast fjárhagslegt sjálfstæði og frelsi." Ég hringdi í framkvæmdastjóra Kassi.is og spurði hann hvers vegna ég væri að fá þetta, hann svaraði því til að mjög oft væri fólk að skrá netföng annars fólk á póstlistann þeirra. Ég spurði einnig fyrir hönd kunningja míns sem hefur notað þjónustu kassi.is og sagði manninum sem var að hvergi hefði verið hakað að það mætti senda viðkomandi póst. Þá svaraði hann því til að þeir væru nýbúnir að flytja gögnin á milli tölva og þetta hefði eitthvað "skolast til".. Það er sorglegt að fólki finnst þetta bara allt í lagi..., að harvesta netföng, að hunsa það þegar fólk skráir sig og tekur merkið úr "það má senda mér póst", og senda póst um eitthvað alls óskylt þeirri starfsemi sem þeir gefa sig út fyrir að vera í. Nýleg dæmi um svipaða hluti hjá mér eru að í gær varð ég allt í einu orðinn "Viðskiptavinur Netskila", ég veit ekkert um þetta fyrirtæki en þeir sendu mér samt póst með kynningu á breyttri þjónustu. Gamnaser.com hefur verið að kynna fyrir mér nýja íslenska klámheimasíðu... Etc. etc... Hvernig er hægt að uppfræða þessa aðila ?, þegar ég hef fengið íslenskt spam hef ég alltaf reynt að grafa upp símanúmer og hringt í viðkomandi fyrirtæki, svörin eru alltaf á svipaðan veg, menn skilja bara hvað ég sé að birsta mig yfir þessu, og ljúga bara einhverju til að losna úr símanum... -- Veigar Freyr Jökulsson veigar@tviund.is