Það var Fimmtudagur í Júní þegar Sigurður Pétursson sagði:
Þekkir einhver þessa aðferð sem hann notar við spammið, fyrra skeytið frá honum leit út fyrir að koma frá póstþjóninum okkar !!
"From: =?ISO-8859-1?B?TdNUTcZMSSBQRVJMVU5OSSBLTCAyMCDNIEtW1kxE?="
(sem er Base64 kóðun á "MÓTMÆLI PERLUNNI KL 20 Í KVÖLD" (sem fær mig til að hugsa "Hver mótmælir Perlunni?"))
og serverinn bætir við sínu FQDN, vegna þess að þetta er ekki netfang.
Þetta er rétt atferli í vissum tilvikum, t.d. eins og þegar allir notendur hafa sama notandanafn og vinstri hluti netfangsins eða t.d. til að parsa addressuna <>, en virðist ekki sniðugt í nútímaumhverfi.
Veit einhver (Maríus?) hvort það mundi brjóta nokkuð ef maður hætti að framkvæma þessa umskrifun, eða jafnvel hafna pósti sem hefur svona From: línur?