Orðaði þetta kannski ekki nógu skýrt.
En ég fékk send tvö bréf á netfang sem tveir "vinir" létu senda mér á. Allt gott og blessað svosem með að þeir vilji láta mann vita af tilboðum.
EEEEN
Ég er að fá send núna allskonar öðruvísi tilboð á þessi netföng sem ég skráði aldrei á lista hjá þeim.
Svara t.d. bæði andri@bofh.is og andri@scrolls.org - Skráði hinsvegar hvorug þessara netfanga á þessari síðu. Búinn að fá tvö skeyti þar sem þeir eru að kynna einhvern annan fjanda.
Ég sé ekkert að því að félagar geti látið hvor aðra vita, en að þeir skuli taka netfangin sem send er á og byrja að spamma þá er ótækt og óþolandi... jafnvel þótt að ég geti farið og afskráð mig á síðu því ég skráði mig ekki sjálfur.
kv, Andri
----- Original Message ----- From: "Þórhallur Hálfdánarson" tolli@tol.li To: "Andri Óskarsson" andri@scrolls.org Cc: gurus@lists.isnic.is Sent: Tuesday, May 13, 2003 9:20 PM Subject: Re: [Gurus] Avis spammið
Daginn
-*- Andri Óskarsson andri@scrolls.org [ 2003-05-13 18:24 ]:
Veit ekki hvort þið hafið fengið þetta en ég hef verið að fá
auglýsingapósta
frá AVIS.
Þetta er ekki vegna þess að ég bað um að fá sendan póst á þessi netföng heldur þá bjóða þeir fólki að segja vinum sínum frá einhverjum leik og spamma svo báða aðilla stöðugt.
Er ég ekki að fara með rétt mál þar sem ég segi að þeir megi aðeins
senda
markpóst á þá sem beðið hafa um það, sjálfir?
Tjah, þær sendingar sem ég hef fengið eru að mínu mati ekki mjög
frábrugðnar "senda frétt" möguleikum sem finna má á öllum helstu fréttamiðlum, t.d. baggalutur.is og mbl.is.
Það er reyndar misjafnt hvernig svona þjónustur eru útfærðar; ýmist er
rekstararaðili vefjarins skráður sendandi, eða From: línan er "fölsuð" með nafni og netfangi þess sem gaf þitt netfang upp.
Ég hef ekki skráð mig, en ég fékk skeyti stílað frá félaga mínum -- ekkert
annað fengið. Ef þú ert að fá eitthvað eftir að þú skráir þig... þá hefðiru átt að lesa betur það sem stendur á síððunni:
"Það mun sendast e-mail frá þér á alla þá sem þú gefur upp, til hvatningar
um að taka þátt í leiknum. Einnig fara þeir og þú inná póstlista hjá Avis sem er hægt að segja sig af seinna."
Þú ert því búinn að samþykkja "notkunarskilmálana" og frávísa þér réttinum
til að nöldra, IMO.
Ef þeir hinsvegar eru að senda þeim sem ekki hafa submittað, heldur hverra
netföng hafa aðeins verið gefin upp, þá skal ég bakka þig upp í duglegri kvörtun.
-- Kveðja, Tolli tolli@tol.li