[This message has also been posted.] Daginn! Ég var að velta fyrir mér, hvernig ætlar ISnet að bregðast við ruslpóstinum sem var að koma frá halo.is í vikunni? Þetta er klárt brot á notkunarskilmálum sem þeir hafa skrifað undir. Ég ætla sjálfur að kæra þá til samkeppnisstofnunar fyrir brot á lögum um húsgöngu- og fjarsölusamninga, því ég fékk fleira en eitt eintak af auglýsingunni - meira um það hér: http://bre.klaki.net/dagbok/faerslur/976181268.shtml Hvernig væri að setja inn í skilmála ISNIC fyrir nýjum svæðisnöfnum að ef þjónusta hýst hjá viðkomandi svæðisnafni er sannanlega auglýst með óumbeðnum fjöldasendingum tölvupósts, þá verði svæðisnafnið tekið af viðkomandi aðila samstundis? Mér þætti það doldið flott refsing, því hún er ein af fáum sem duga til að tryggja að augýsingar eins og halo voru að senda frá sér gagnist ekki sendandanum. -- Bjarni