Góðan daginn, Í kjölfarið á komu skoost.com inn á listann hefur skapast umræða um að breyta uppröðuninni á listanum á þann veg að raðað sé eftir fjölda innlendra notenda í stað þess að miða við heildarfjölda notenda eins og gert er í dag. Það væri sá listi sem myndi birtast í Morgunblaðinu og væri sjálfgefin röðun listans á modernus.is. Eftir sem áður geta menn smellt á haus hvers dálks fyrir sig til að breyta röðuninni. Til viðbótar kom upp sú hugmynd að skipta listanum í tvennt, einn fyrir innlenda notkun og annar fyrir heildarnotkun, en ég sé ekki að slíkt sé nauðsynlegt nema að eigi að birta báða listanna í Morgunblaðinu. Ég myndi vilja heyra ykkur sjónarmið á því að raða listanum eftir fjölda íslenskra notenda frekar en heildarfjölda notenda eins og gert er nú. kv. Einar Halldórsson Internet á Íslandi hf. - Modernus
participants (1)
-
Postlisti samraemdrar vefmaelingar