13 Sep
2000
13 Sep
'00
11:24 a.m.
Sælir, Mig langaði bara að spyrja hvenær þessi dómur féll þar sem samkvæmt okkar gögnum er ekki búið að dæma ennþá, aðeins búið að setja lögbann á úthlutunina þar til niðurstaða fæst.
Óli
Þann 07. september 2000, ritaði Leifur A. Haraldsson eitthvað á þessa leið:
************** LAH-07092000 Það hafa fallið fleiri dómar en TM. Nýverið féll dómur í máli ekringla.is. En hann féll Eignarhaldsfélagi kringlunnar í vil. Þ.e. GMi ætlaði að vera með verslunarmiðstöð á netinu og skýra hana ekringla.is. Kringlan fékk það í gegn að það væri brot á vörumerkjarétti þar sem kringlan væri vörumerki þeirra en ekki almennt orð yfir verslunarmiðstöð. GMi er nú með plaza.is.
--
Ólafur Osvaldsson
Kerfisstjóri
Internet á Íslandi hf.
Sími: 525-5291
Email: oli@isnet.is