Hæ,
Hér er búinn að vera umræða m.a. um kostnað við .is lén, hjá ISNiC, mörgum
finnst kostnaður vera of mikill og hafa dregið fram verðskrár yfir kostnað
við gTLD lén og önnur ccTLD lén (.dk, .de. o.fl.).
Vil benda áhugasömum á að þar sem ISNiC er hlutafélag er að ég held hægt
að nálgast ársuppgjör félagsins hjá Hlutafélagaskrá Hagstofunnar, þannig
ættu þeir að geta skoðað rekstrarlegar forsendur félagsins, eigið fé,
veltu, hagnað, o.s.frv.
Ég hef ekki séð þessar upplýsingar á vefnum hjá ISNiC og vona að þetta sé
rétt hjá mér, ég hef a.m.k. sjálfur geta farið til Hagstofunnar áður og
nálgast ársskýrslur annara hlutafélaga - gegn gjaldi.
Ef þessar upplýsingar væru fyrir hendi gæti hugsanlega farið fram umræða
um rekstrarforsendur og gjaldskrá félagsins sem tæki mið að því umhverfi
sem það starfar í.
--
| Einar Örn Eiðsson
| Tel: +354-662-1767
| Website:
http://www.sukk.net
| ICQ: 8818678 / MSNM: einar [at] sukk.net
----------------------------- -- - - - -
> Bjarni,
>
> Þann 10. desember 2003, ritaði Bjarni Thor Gylfason eitthvað á þessa
> leið:
>
>> Hinsvegar, þá er gjaldskrá Isnic engan veginn í samræmi við það sem
>> við erum að leggja út fyrir lén utan .is. Ef ég gæti fengið allar
>> mögulegar og ómögulegar útgáfur af bókhlaða.is fyrir $85 per stykki
>> næstu 10 ár, þá myndi ég versla það, þegjandi og hljóðalaust.
>
> Eins og kom fram fyrir stuttu á þessum lista þá er ISNIC ekki með neitt
> mikið hærri gjaldskrá en sum þeirra léna sem voru tilgreind þar.
>
> Mér þætti aftur á móti fróðlegt að vita hvar þú getur keypt lén á $85 í
> 10 ár þar sem ég hef aldrei heyrt slík verð. Meiraðsegja gTLD eru flest
> með $35 á ári.
>
> /Óli
>
> --
> Ólafur Osvaldsson
> Kerfisstjóri
> Internet á Íslandi hf.
> Sími: 525-5291
> Email: oli@isnic.is
>
> _______________________________________________
> Domain mailing list
> Domain@lists.isnic.is
>
http://lists.isnic.is/mailman/listinfo/domain