11. október 2001
Leitað er eftir áliti netsamfélagsins á eftirfarandi tillögum um breytingar á
reglum um skráningu léna og stjórnun á léninu .is frá 1. des 2000
Vinsamlega sendið athugasemdir/ábendingar, ef einhverjar eru, á listann.
Með bestu kveðju,
Helgi Jónsson
framkvæmdastjóri ISNIC
----
Tillögur um breytingar á reglum:
Skv. gildandi reglum:
1.1.3. Rétthafi
Rétthafi er sú lögpersóna sem skráð er fyrir léni hjá ISNIC. Eftir
skráningu léns hjá ISNIC getur rétthafi léns farið fram á breytingu á
stjórnunarlegum tengilið léns. Rétthafi hefur ekki heimild til annarra
breytinga á skráningu.
Tillaga:
1.1.3. Rétthafi
Rétthafi er sú lögpersóna sem skráð er fyrir léni hjá ISNIC. Eftir
skráningu léns hjá ISNIC getur rétthafi léns farið fram á breytingu á
stjórnunarlegum tengilið léns. Rétthafi getur einnig lagt lén niður eða
framselt það til annars aðila. Rétthafi hefur ekki heimild til að gera
aðrar breytingar á skráningu léns en þær sem tilgreinar hafa verið hér.
--
Tillaga um nýja reglu (regla er ekki til í núverandi reglum):
1.1.16
Skilyrt uppsögn á léni
Skilyrt uppsögn felur í sér beiðni um umskráningu til nýs
aðila. Við uppsögn þarf kennitala nýs aðila að koma
fram. Nýr aðili verður að sækja um lénið innan tveggja daga
frá því að skilyrt uppsögn berst til ISNIC. Komi ekki umsókn
um lénið innan tilskilins frests er uppsögn ógild og lén
áfram skráð á fyrri aðila.
--
Skv. gildandi reglum:
2.2.2.
Innlendur umsækjandi getur skráð allt að 15 lén í sínu nafni.
Umsækjandi getur ennfremur sótt um eitt aukalén með tilvísun í hvert
þegar skrásett vörumerki hjá Einkaleyfastofu. Vörumerki skal vera
orðmerki. Staðfesting á skrásetningu vörumerkis skal liggja fyrir þegar
umsókn er send ISNIC. Engin takmörkun er á fjölda aukaléna sem skráð
eru með þessum hætti.
Tillaga:
2.2.2.
Engin takmörk eru á fjölda léna sem innlendur umsækjandi getur
skráð í sínu nafni.
------------------------------------------------------------------------------
Tillögur um breytingar á gjöldum (gjöld eru án vsk).
Þjónustugjald
-------------
Þjónustugjald verði kr. 10.000,- árlega í stað 50.000,- árlega.
--
Kærugjald
---------
Kærugjald verði í tvennu lagi. Í fyrsta lagi staðfestingargjald,
kr. 60.000,- og í öðru lagi úrskurðargjald kr. 60.000,-
Tillaga um breytingu er sett fram í kjölfar tillögu úrskurðarnefndar
um málsmeðferð.
--
Umsýslugjald
------------
Umsýslugjald verði formlega lagt niður.