Re: (SPAM Tilkynning) nemendur.net
Jon, On Mon, 28 Mar 2005, Jon Bjarnason wrote:
Það var sennt til þín eitt skeyti í góðri trú, ekki 3 eins og þú segir í kærunni.
Þrjú skeyti fékk ég sem eru hér með í viðhengi þér til upplýsingar, veistu ekki einusinni á hverja þú varst að senda eða hversu oft?
Ekki var verið að selja þér nokkuð, eins og þú veist félagi.
Hvort sem ég þarf að borga fyrir að nota þjónustuna eða ekki kemur bara málinu ekkert við.
Hér var eingöngu verið að óska eftir því að þínir gómlu skólafélagar fengju notið þín og það er óneitanlega dálítið áfall að þú skulir hafa brugðist við með þessum hætti.
Þú veist greinilega lítið um mig.
Svo hér var ekki um bena markaðssetningu að ræða, í versta falli óbein markaðssetningu. en í raun skiptir það ekki öllu.
Þetta er bein markaðssetning, hvernig getur hún verið óbein?
Ég taldi mig hafa vissu fyrir því að þið hefðuð áhuga á þessu, enda sent til valinna einstaklinga,
Hverju skiptir hvort þú taldir einhverja hafa áhuga á þessu, ef ég tel einhvern vilja Dabba dauðann, má ég þá drepa hann? Þú sendir þetta á netföng sem spanna allt starfsólk ISNIC, mín vegna gætirðu hafa gert það sama með alla starfsmenn Flugleiða eða Eimskipa...hver er munurinn?
ég bjóst satt að segja alls ekki við að ég fengi svona viðbrögð frá þér, allir aðrir hafa tekið þessu fegins hendi.
Það er einfaldlega vegna þess að meirihluti fólks eyðir SPAMi því það nennir/kann ekki að eltast við vitleysingana sem senda þetta. /Óli P.S. Hvaða kæru? Er tölvupósturinn minn allt í einu orðinn að kæru?
-----Original Message----- From: Olafur Osvaldsson [mailto:oli@isnic.is] Sent: 27. mars 2005 23:08 To: Jon Bjarnason Cc: abuse-l@lists.isnic.is; abuse@islandssimi.is; hostmaster@isnet.is Subject: Re: (SPAM Tilkynning) nemendur.net
Jon,
On Sun, 27 Mar 2005, Jon Bjarnason wrote:
Ég taldi ykkur félaganna hjá RHnet hafa áhuga á þessu, leitt að svo skildi ekki hafa verð og því tugir manna hafa lagt hönd á plóginn til þess að skapa aðstöðu á 25.000 síðum svo gamlir skólafélagar geti aftur komist í samband við hvorn annan. Það hafa hundruð manna skráð sig hér og þeir eru að bíða eftir að félagar þeirra skrá sig inn. Leitt að þurfa að loka fyrir þessa gjaldfrjálsu þjónustu vegna einnar rangrar ályktunar af minni hálfu.
Þetta hefur ekkert með RHnet að gera heldur er hreint og klárt lögbrot eins og ég benti á í fyrra skeyti, vinsamlega kynntu þér landslög áður en þú ferð útí svona vitleysu.
Segir ekki einhversstaðar að vanþekking á lögum sé engin afsökun fyrir lögbroti?
Þú ert líklega ekki með kennitöluna mína, hana þarftu líklega til þess að loka fyrir þetta: ******-****
Ég hef ekkert með kennitöluna þína að gera.
/Óli
-----Original Message----- From: Olafur Osvaldsson [mailto:oli@isnic.is] Sent: 27. mars 2005 19:47 To: abuse@islandssimi.is Cc: jonb@it-cons.com; abuse-l@lists.isnic.is; hostmaster@isnet.is Subject: (SPAM Tilkynning) nemendur.net
Eftirfarandi skeyti barst mér í þremur eintökum. Vinsamlega kynnið viðskiptavinum ykkar reglur og landslög.
Sending þessa tölvupósts er brot á fjarskiptalögum (nr. 81/2003), svo og lögum um húsgöngu og fjarsölusamninga (nr. 46/2000).
Nánari skýringar:
Lög um fjarskipti, nr. 81/2003, 46. grein, 1. og 2. málsgrein:
Notkun sjálfvirkra uppkallskerfa, símbréfa eða tölvupósts fyrir beina markaðssetningu er einungis heimil þegar áskrifandi hefur veitt samþykki sitt fyrir fram. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er heimilt að nota tölvupóstfang við sölu á vörum eða þjónustu fyrir beina markaðssetningu á eigin vörum eða þjónustu ef viðskiptavinum er gefinn kostur á að andmæla slíkri notkun tölvupóstfanga þeim að kostnaðarlausu þegar skráning á sér stað og sömuleiðis í hvert sinn sem skilaboð eru send hafi viðskiptavinurinn ekki þegar í upphafi hafnað slíkri notkun.
- ATH. Athugið að þarna eru söluaðilar skyldugir til að gefa mönnum kost á því að mótmæla *skráningu*, ekki bara skilaboðunum sjálfum.
Lög um húsgöngu- og fjarsölusamninga, nr. 46/2000, 14. grein, 2. málsgrein:
Seljendum vöru og þjónustu sem lög þessi taka til ber, áður en bein markaðssókn er skipulögð, að kanna skrá Hagstofu Íslands yfir þá sem vilja ekki að nöfn þeirra séu notuð við markaðssetningu, sbr. ákvæði laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Hafi neytandi óskað eftir því að vera færður í skrána er bein markaðssókn til hans óheimil.
- ATH. ég er á skrá hjá Hagstofunni yfir þá sem vilja ekki að nöfn þeirra séu notuð við markaðssetningu.
/Óli
----- Forwarded message from Jon Bjarnason <jonb@it-cons.com> -----
Return-Path: <nobody@aker.isnic.is> Delivered-To: XXX@isnic.is Received: from localhost (localhost [127.0.0.1]) by aker.isnic.is (Postfix) with ESMTP id DBB1B8A055; Sun, 27 Mar 2005 04:19:37 +0000 (UTC) Received: from aker.isnic.is ([127.0.0.1]) by localhost (aker.isnic.is [127.0.0.1]) (amavisd-new, port 10024) with ESMTP id 99726-09; Sun, 27 Mar 2005 04:19:36 +0000 (UTC) Received: from www.it-cons.com (it-cons.com [194.144.41.51]) by aker.isnic.is (Postfix) with ESMTP id EBF268A04C; Sun, 27 Mar 2005 04:19:35 +0000 (UTC) Received: from Spooler by www.it-cons.com (Mercury/32 v4.01b) ID MO000333; 27 Mar 2005 05:20:01 +0100 Received: from spooler by it-cons.com (Mercury/32 v4.01b); 27 Mar 2005 04:43:08 +0100 From: "Jon Bjarnason" <jonb@it-cons.com> To: nofn1@nemendur.net Subject: nemendur.net Date: Sun, 27 Mar 2005 04:50:26 +0100 Sender: Maiser@it-cons.com X-listname: <nofn1@it-cons.com> Reply-To: <jonb@nemendur.net> Comments: Originally To: <nofn1@nemendur.net> MIME-Version: 1.0 Content-Type: text/plain; charset="iso-8859-1" Content-Transfer-Encoding: 8bit X-Mailer: Microsoft Outlook IMO, Build 9.0.2416 (9.0.2911.0) (via Mercury/32 v4.01b) Message-ID: <369606687.3004.1111898559@it-cons.com> X-Virus-Scanned: by amavisd-new at aker.isnic.is Content-Length: 267 Lines: 14
Hæ
Manstu eftir þeim sem þú varst með í skóla ? Eru þeir að bíða eftir þér á www.nemendur.net ?
Nú kostar ekkert að skrá sig. Happdrætti áskrifenda hefst fljótlega, vinningar: 4 bækur frá Sölku forlagi Fleiri uppákomur væntanlegar.
Vertu með.
Kveðja nemendur.net
----- End forwarded message -----
-- Ólafur Osvaldsson Kerfisstjóri Internet á Íslandi hf. Sími: 525-5291 Email: oli@isnic.is
-- Olafur Osvaldsson Systems Administrator Internet a Islandi hf. Tel: +354 525-5291 Email: oli@isnic.is
-- Olafur Osvaldsson Systems Administrator Internet a Islandi hf. Tel: +354 525-5291 Email: oli@isnic.is
Jæja, ég hef hér með ákveðið að leyfa öllum sem vilja fylgjast með og commenta á skítinn sem ég eltist við á http://spamhunt.icelandic.net/ Þarna mun koma update á þetta mál og þau önnur svona mál sem ég finn mér tíma til að eyða í. /Óli
participants (2)
-
Olafur Osvaldsson
-
Olafur Osvaldsson