DUL-listinn hefur verið uppfærður. Þessi útgáfa er nr. 8 # Helstu breytingar: # Nokkur net hjá simnet hafa fallið út í staðinn kom du.simnet.is # Eitt net hjá Títan hefur fallið út og annað bæst við Einnig hafa verið gerðar þær breytingar að nú er komið á listann serialnúmer sem er hækkað við breytingu þannig að auðvelt er að sjá hvort eintak sem er í notkun er nýjasta útgáfa. Þá hefur listinn sjálfur verið settur í textaskrá sem hægt er að sækja með t.d. wget forritinu beint inn í skel og importa síðan í /etc/mail/access skrána. Textaskráin er (og verður) á slóðinni http://www.isp.is/efni/dul-list.txt en skýringar eru á slóðinni http://www.isp.is/efni/dul-list.phtml Athugið að breytingar eru ekki lengur feitletraðar. Til þess að greina betur hverjir nýta sér listann væri gott ef þeir sem nota hann láti vita í netfangið dul-list@isp.is og ef þeir hafa gögn um hvernig hann reynist þá væri gott að fá það fram líka. Hjá Snerpu hindrar þessi listi 1,07 skeyti pr. notanda á mánuði. Reikna má með að flest skeytin séu frá Hybris orminum en ella sé um spam (ruslpóst) að ræða. Með því að nota listann er hverjum og einum notanda því hlíft við a.m.k. einni veirusendingu á mánuði. kk, -B- -- = - = - = - = - = - = - = - = - = - = - = - = - = - = - = - = - = - -Bjorn Davidsson- - Snerpa ehf. Computer & Networks services bd@it.is - 456-5470 - Managata 6 - 400 Isafjordur - Iceland
participants (1)
-
Bjorn Davidsson