Ekki nema þær, að spammið sem vírussmitaðir notendur senda fer í gegnum póstþjóninn ykkar, og það verður því hann sem fer á alla þekkta og óþekkta blackhole lista? :)
Notendur með orma í gangi reyna yfirleitt að senda beint á póstþjón móttakanda, svo að þeir stoppa vegna þessa. Þeir sem eru nógu 'gáfaðir' til að nota okkar þjón sem smarthost myndu gera það hvort sem þeir væru blokkaðir eða ekki. Við sjáum þá yfirleit strax þar sem þeir valda álagi á veiruvörnina. Og þá eru þeir drepnir.
Ég held að Kristófer hafi verið að tala um spammið sem trojarnir senda, ekki vírusuna.
Jamm - rétt.
Ég hélt það líka. - En skiptir það máli? Ef trójuhestar og/eða aðrir gripir kunna að fletta í stillingum viðkomandi notanda og leita að því hvaða SMTP server notandinn hefur stillt á þá fæ ég ekki séð að það skipti nokkru máli hvort notandinn má senda beint út eða ekki. Trojaninn notar SMTP-serverinn hvort sem er. Ef það er gert sjáum við álagið sem slíkt veldur og getum stoppað það (og höfum gert). Ef hægt er að senda beint út þá fer mun meira af spammi út og oft án þess að nokkuð sé gert í því fyrr en í óefni er komið og þá með verulegum óþægindum fyrir viðkomandi notanda, s.s. lokun aðgangs þar til vélin hefur verið hreinsuð. Er nokkuð verið að halda því fram að það sé betra að notandi geti sent beint út á Netið án þess að hafa hugmynd um hvað hann er að gera? Sjá einnig nánari skilgreiningu í öðrum pósti um hverjir 'þeir' eru :) -B- -- =-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-==-=-=-=-= Snerpa ehf. - Tölvu- og netþjónusta. S: 520-4000 bjossi@snerpa.is - www.snerpa.is - GSM: 840-4008