Sælir Þann 13. February 2002, ritaði gsh eitthvað á þessa leið:
Sæll Óli,
Skv. svari frá Markmiðlun þá óskaði ISNic eftir þessum skeytum í gegnum síma. Þetta hefðuð þið líklega geta aflað ykkar upplýsinga um sjálf.
Þegar ég leitaði upplýsinga um það innanhúss hjá mér í nóvember síðastliðinn hvort einhver hefði skráð þetta þá fékk ég neitun, ef þær upplýsingar sem þú kemur með í dag hefðu komið fram þegar ég kvartaði við ykkur þá hefði þetta aldrei gengið svona langt. Ég hef ekki ennþá gengið á þann starfsmann sem þeir benda á og tel það hvort eð er aukaatriði, ég mun sjá til þess að starfsmenn hér gefi ekki tölvupóstfang fyrirtækisins upp í þessum tilgangi.
Sjá annars upplýsingar sem ég sendi í öðru bréfi.
NB! "Skíma" tekur hart á öllum brotum á skilmálum okkar og þar með talið SPAM. Þetta var hins vegar ekki SPAM og við ræddum um það við Markhúsið að bæta útsendingarlista sína til að það komi fram hvernig netfanga var aflað og hvenær. Við ræddum einnig við þá um að hafa samband við ykkur en það virðist hafa misfarist.
Heldur betur.
Að sjálfsögðu hefðum við átt að tilkynna þér niðurstöðu en í þessu tilviki misfórst það, líklega vegna þess að þetta var ekki SPAM og sendandi ætlaði að staðfesta áskriftina.
Þar sem isnic@isnic.is er greinilega ekki einstaklingur heldur listi af netföngum þá get ég uppfrætt þig um að ég hef verið í sambandi við aðra viðtakendur út af sama máli.
Ég sé um kvartanir á svona málum fyrir hönd fyrirtækisins, ef einhver einstaklingur kvartar að auki fyrir sjálfan sig þá hef ég ekkert við það að athuga.
Varðandi persónulega tilvísun þá er ég ekki þekktur fyrir að barma mér, þetta var fagleg fyrirspurn til þeirra sem geta talist fagmenn á listanum.
Biðst velvirðingar á þeirri athugasemd minni, ég var bara búinn að fá mig fullsaddan af því sem ég taldi vera sending á kvörtunum beint í ruslið hjá Skímu. Ég ætla að leyfa mér að senda póst á gurus með tillögum að meðhöndlun abuse pósts seinna í dag. Óli -- Ólafur Osvaldsson Kerfisstjóri Internet á Íslandi hf. Sími: 525-5291 Email: oli@isnic.is