Sæll Andri og aðrir gúrúar. Það stefnir í að Sendmail 8.13 verði með svipuðum fídusum og þú lýsir skv. breytingaskrá: | Basic connection rate control support has been added: the daemon | maintains the number of incoming connections per client | IP address and total in the macros {client_rate} and | {total_rate}, respectively. These macros can be used | in the cf file to impose connection rate limits. | A new option ConnectionRateWindowSize (default: 60s) | determines the length of the interval for which the | number of connections is stored. Based on patch from | Jose Marcio Martins da Cruz, Ecole des Mines de Paris. ( http://www.sendmail.org/8.13.0.PreAlpha4.html ) Etv. getur þú grafið upp þessa patcha sem þetta byggir á og sett þá á eldri útgáfur. (þ.e.a.s. eldri en þessa *PreAlpha* útgáfu ;-) ) On Mon, Feb 23, 2004 at 01:51:19PM -0000, Andri Óskarsson wrote:
Ég er að leita mér að leið til þess að hægja á ferli spammara á póstþjóninn minn. Meðal annars til að stoppa brute force sendingar (aaaaa@domain.is, aaaab@domain.is) og einnig ef ske kynni að einhver á mínum netum færi að senda mikið magn af rusli með eða án vitundar.
Svo ég er að leita eftir einhverskonar flood protection. Þannig að ef viðkomandi addressa (ip addressa) sendir segjum 10 bréf á innan við mínútu þá vill ég senda 454 error í svona klukkutíma á þessa tilteknu addressu.
Þar sem fæstir þessir spammarar gera þetta í gegnum raunverulegan póstþjón þá efast ég um að þessi tól þeirra skilji 454 og láti mig í friði í framtíðinni en í versta falli ætti þetta að hægja á magni þess rusls sem fer í gegnum þjóninn minn.
Ég nota sendmail og ef einhver hefur heyrt um lausnir sem gætu hjálpað endilega commenta.
Virðingarfyllst, Andri Óskarsson
_______________________________________________ Gurus mailing list Gurus@lists.isnic.is http://lists.isnic.is/mailman/listinfo/gurus
Bestu kveðjur. Ingimar