----- Original Message -----From: Sigurður PéturssonTo: Isak BenSent: Thursday, June 13, 2002 12:50 PMSubject: Re: [Gurus] Re: [Gurus] Spammararnir í Friði 2000
Sælir.
og HEYR HEYR ..
Skyggnir hf. mun ALDREI veita Ástþóri Magnússyni sjálfum eða samtökum hans Friði 2000 þjónustu af neinu tagi.
Við hjá Skyggni sem vorum áður hjá Islandia þjónustuðum þá þar og gerum það ekki aftur, það er á hreinu.
Þekkir einhver þessa aðferð sem hann notar við spammið, fyrra skeytið frá honum leit út fyrir að koma frá póstþjóninum okkar !!
Seinna skeytið kemur frá hinum og þessum bull addressum á email.com sem eru örugglega ekki til !
peace.is er skráð í dns þjónustu hjá Sólver hf. !
Eru þeir ekki til í að loka á þá vegna misnotkunar ?
SigPet
Kveðja / Regards
Sigurður Pétursson
Netstjóri / Network Administrator, CCSA 2000
E-mail: sigpet@skyggnir.is
Sími:/Tlf: +354-575-6139
Þjónustusvið - Netþjónusta / Network services
E-mail: net@skyggnir.is
Skyggnir hf., Holtasmári 1, 201 Kópavogur, Iceland.
http://www.skyggnir.is
Tel. +354-575-6100, Fax: +354-575-6110
Isak Ben <isak@gola.snerpa.is>
Sent af: gurus-admin@lists.isnic.is13.06.2002 12:14
Til: Kristofer Sigurdsson <ks@rhi.hi.is>
Afrit: gurus@lists.isnic.is
Efni: [Gurus] Re: [Gurus] Spammararnir í Friði 2000
Heyr heyr.
Allavega mun Snerpa ehf mun ekki veita peace.is neina þjónustu ef
Íslandssími segir þeim upp.
--
Ísak Ben.
On Thu, Jun 13, 2002 at 11:07:32AM +0000, Kristofer Sigurdsson wrote:
> Sælt veri fólkið,
>
> Ég efast ekki um að flestir á þessum lista hafa lent í hinum hvimleiðu
> skeytasendingum Friðar 2000, þar sem þeir taka það fram, að þeir hafi
> fengið netföngin á listanum með því að kaupa geisladiska að utan.
> Einnig taka þeir fram að þeir séu ekki að brjóta lög, þar sem þeir eru
> ekki að auglýsa neitt til sölu.
>
> Þeir eru augljóslega með þessu að brjóta alla notkunarskilmála.
>
> Fyrst sendu þeir bréf frá peace.is, en eftir að Íslandssími skammaði þá
> aðeins (ég tek ofan fyrir Sveini Guðna hjá Íslandssíma, fyrir að taka
> vel á því máli), virðast þeir hafa skipt yfir á email.com. Ég bíð svars
> frá abuse@email.com, en þeir virðast hafa frekar stranga policy gegn
> svona spammi.
>
> Þó að málefnið sem er verið að auglýsa sé óneitanlega gott (ég vonast
> eftir því að sjá sem flesta í mótmælum), þá er aldrei ásættanlegt að
> senda spam. Er ekkert sem er hægt að gera í þessu, ef þeir halda áfram
> að skipta um póstþjóna? Íslandssímamenn, er enginn séns á því að þið
> getið sagt upp netsambandinu við þá?
>
> Og við, Internetþjónustuaðilar, jafnvel sameinast um að veita þeim ekki
> þjónustu?
>
> Bara mín tvö sent. ;)
>
> --
> Kristófer Sigurðsson Tel: +354 525 4103
> Netsérfræðingur/Network specialist E-mail: ks@rhi.hi.is
> Reiknistofnun HÍ/University of Iceland
> NIC handles: KS11-IS - KS4969-RIPE
> Public PGP key: finger -l ks@katla.rhi.hi.is
_______________________________________________
Gurus mailing list
Gurus@lists.isnic.is
http://lists.isnic.is/mailman/listinfo/gurus