Till�gur um breytingar � reglum um skr�ningu l�na.
11. október 2001 Leitað er eftir áliti netsamfélagsins á eftirfarandi tillögum um breytingar á reglum um skráningu léna og stjórnun á léninu .is frá 1. des 2000 Vinsamlega sendið athugasemdir/ábendingar, ef einhverjar eru, á listann. Með bestu kveðju, Helgi Jónsson framkvæmdastjóri ISNIC ---- Tillögur um breytingar á reglum: Skv. gildandi reglum: 1.1.3. Rétthafi Rétthafi er sú lögpersóna sem skráð er fyrir léni hjá ISNIC. Eftir skráningu léns hjá ISNIC getur rétthafi léns farið fram á breytingu á stjórnunarlegum tengilið léns. Rétthafi hefur ekki heimild til annarra breytinga á skráningu. Tillaga: 1.1.3. Rétthafi Rétthafi er sú lögpersóna sem skráð er fyrir léni hjá ISNIC. Eftir skráningu léns hjá ISNIC getur rétthafi léns farið fram á breytingu á stjórnunarlegum tengilið léns. Rétthafi getur einnig lagt lén niður eða framselt það til annars aðila. Rétthafi hefur ekki heimild til að gera aðrar breytingar á skráningu léns en þær sem tilgreinar hafa verið hér. -- Tillaga um nýja reglu (regla er ekki til í núverandi reglum): 1.1.16 Skilyrt uppsögn á léni Skilyrt uppsögn felur í sér beiðni um umskráningu til nýs aðila. Við uppsögn þarf kennitala nýs aðila að koma fram. Nýr aðili verður að sækja um lénið innan tveggja daga frá því að skilyrt uppsögn berst til ISNIC. Komi ekki umsókn um lénið innan tilskilins frests er uppsögn ógild og lén áfram skráð á fyrri aðila. -- Skv. gildandi reglum: 2.2.2. Innlendur umsækjandi getur skráð allt að 15 lén í sínu nafni. Umsækjandi getur ennfremur sótt um eitt aukalén með tilvísun í hvert þegar skrásett vörumerki hjá Einkaleyfastofu. Vörumerki skal vera orðmerki. Staðfesting á skrásetningu vörumerkis skal liggja fyrir þegar umsókn er send ISNIC. Engin takmörkun er á fjölda aukaléna sem skráð eru með þessum hætti. Tillaga: 2.2.2. Engin takmörk eru á fjölda léna sem innlendur umsækjandi getur skráð í sínu nafni. ------------------------------------------------------------------------------ Tillögur um breytingar á gjöldum (gjöld eru án vsk). Þjónustugjald ------------- Þjónustugjald verði kr. 10.000,- árlega í stað 50.000,- árlega. -- Kærugjald --------- Kærugjald verði í tvennu lagi. Í fyrsta lagi staðfestingargjald, kr. 60.000,- og í öðru lagi úrskurðargjald kr. 60.000,- Tillaga um breytingu er sett fram í kjölfar tillögu úrskurðarnefndar um málsmeðferð. -- Umsýslugjald ------------ Umsýslugjald verði formlega lagt niður.
Tillaga um nýja reglu (regla er ekki til í núverandi reglum):
1.1.16
Skilyrt uppsögn á léni
Skilyrt uppsögn felur í sér beiðni um umskráningu til nýs aðila. Við uppsögn þarf kennitala nýs aðila að koma fram. Nýr aðili verður að sækja um lénið innan tveggja daga frá því að skilyrt uppsögn berst til ISNIC. Komi ekki umsókn um lénið innan tilskilins frests er uppsögn ógild og lén áfram skráð á fyrri aðila.
*** Þessi er mjög tímabær, ef ég skil þetta rétt er þá verið að auðvelda þeim sem vilja færa lén á milli aðila að framkvæma það og þ.a.l. selja það?
Tillaga:
2.2.2. Engin takmörk eru á fjölda léna sem innlendur umsækjandi getur skráð í sínu nafni.
*** Mjög svo í takt við nútímann, mér líst mjög vel á þetta. Enda enginn ástæða til að hafa 15 á mann. Að öllu jöfnu sýnist mér isnic vera að þróast í rétta átt og sé ég ekkert athugavert við þessar breytingar. Með kveðju, Leifur A. Haraldsson
On Wed, Oct 17, 2001 at 02:52:56PM -0000, Leifur A. Haraldsson wrote:
Tillaga um nýja reglu (regla er ekki til í núverandi reglum):
1.1.16
Skilyrt uppsögn á léni
Skilyrt uppsögn felur í sér beiðni um umskráningu til nýs aðila. Við uppsögn þarf kennitala nýs aðila að koma fram. Nýr aðili verður að sækja um lénið innan tveggja daga frá því að skilyrt uppsögn berst til ISNIC. Komi ekki umsókn um lénið innan tilskilins frests er uppsögn ógild og lén áfram skráð á fyrri aðila.
*** Þessi er mjög tímabær, ef ég skil þetta rétt er þá verið að auðvelda þeim sem vilja færa lén á milli aðila að framkvæma það og þ.a.l. selja það?
Þetta ákvæði er sett inn til að auðvelda eðlilegar færslur á lénum milli aðila. Nokkuð hefur verið um að fyrirtæki renni saman eða hætti og önnur taki við. Önnur dæmi má taka um eðlilegt framsal á lénum. Í þannig tilfellum þykir mjög eðlilegt að rétthafi geti framselt lén sitt í þeirri vissu að lénið gangi til ákveðins aðila.
Tillaga:
2.2.2. Engin takmörk eru á fjölda léna sem innlendur umsækjandi getur skráð í sínu nafni.
*** Mjög svo í takt við nútímann, mér líst mjög vel á þetta. Enda enginn ástæða til að hafa 15 á mann. Að öllu jöfnu sýnist mér isnic vera að þróast í rétta átt og sé ég ekkert athugavert við þessar breytingar.
Með kveðju, Leifur A. Haraldsson
_______________________________________________ Domain mailing list Domain@lists.isnic.is http://lists.isnic.is/mailman/listinfo/domain
-- Helgi Jonsson, framkvæmdastjóri (director) hjons@isnic.is Internet Iceland - ISNIC Taeknigardur phone +354-525-4950 Dunhagi 5 fax +354-561-0999 IS-107 Reykjavik Iceland homepage www.isnic.is
participants (2)
-
Helgi Jonsson
-
Leifur A. Haraldsson