RE: Tillaga að breytingum úthlutunarreglna .is
Ágætu domain listamenn! Ég fagna sérstaklega grein 1.3 sem opnar fyrir það að við eigum þó að minnsta kosti möguleika á því að sækja um ákveðið lén sem hefur tengst okkur í meira en 12 ár. Núverandi úthlutunarreglur hafa komið í veg fyrir það. Ég styð því fram komna breytingu á þessari grein. Með bestu kveðju Halldór Kristjánsson, framkvæmdastjóri ------------------------------------------------------------------ Ráðgjafi í upplýsingatækni, (Information Technology Consultant) Tölvu- og verkfræðiþjónustan, Grensásvegi 16, 108 Reykjavík Ísland / Iceland Sími / Tel: (354) 520 9000; Fax: (354) 520 9009 Netfang / E-mail: halldor@tv.is; Heimasíða/URL: www.tv.is ------------------------------------------------------------------ Grein 1.3: ---------- 1.3 Aðferðir við skráningu Hver umsækjandi getur fengið skráð 5 lén á sína kennitölu. Hægt er að skrá þessi 5 lén með þrennum hætti. a. Sem fullt nafn umsækjanda. b. Sem stílfært eða skammstafað nafn umsækjanda. c. Byggt á greinargerð sem þarf að vera lýsandi og útskýra hvers vegna umsækjandi ætti að fá þetta lén fram yfir aðra. Ef þessi leið er valin þá er greinargerðin lögð fyrir í úthlutunardeild INTÍS sem ákveður hvort greinargerð sé fullnægjandi eða ekki. Umsækjandi getur þó skráð aukalén umfram fyrstu 5, en öll lén umfram 5 verða að vera byggð á orðmerki sem skráð er í vörumerkjaskrá Einkaleyfastofu enda uppfylli það að öðru leyti skilyrði skráningar. Með tilvísun í skráð vörumerki er hér átt við að aðili sem á skráð "MERKI" í vörumerkjaskrá getur sótt um lénið "MERKI.is". Ef ská á lén byggt á vörumerki þá þarf vörumerkið að hlýta þessum skilyrðum: Vörumerki, ..þarf að vera þegar skráð, þ.e. umsókn um skráningu vörumerkis er ekki tekin gild. ..þarf að vera orðmerki, þ.e. myndmerki er ekki tekið gilt. INTIS áskilur sér rétt til að krefjast viðeigandi gagna um að skilyrði skráningar séu uppfyllt."
participants (1)
-
halldor@tv.is