Tillögur um breytingar á reglum um skráningu og stjórnun léna undir .is
Ágætu netverjar, óskað er eftir athugasemdum vegna meðfylgjandi tillagna um breytingar á reglum um úthlutun og stjórnun á léninu .is Meginástæður breytinga eru þessar: a) Árleg léngjöld verða reikningsfærð á þann máta að eindagi greiðslu árgjalds miðast við afmælisdag lénsins. Reikningar verða sendir út tímanlega fyrir afmælisdag léns. Léni verður lokað hafi greiðsla ekki borist á eindaga. Breyting miðast við lén sem eiga afmæli eftir 31. desember 2003. b) Opnað verður fyrir skráningu á lénum um vef ISNIC 1. janúar 2004. Skráning verður alfarið um vefinn frá þessum tíma og hætt verður að taka við umsóknum bréfleiðis eða um fax. c) Flutningsgjald verður ekki innheimt eftir 1. janúar 2004 sé flutningur framkvæmdur um vef ISNIC. d) Þann 1. júlí 2004 verður opnað fyrir skráningu léna sem innihalda séríslenska stafi. Mismunandi er hvenær ætlað er að breytingar taka gildi. Kv, Helgi Jónsson -- [Skýring Til að gera mögulegt að ská lén skv. IDN RFC reglum, lén með séríslenskum stöfum. Þessi breyting verður að taka gildi strax vegna tæknilegra áhrifa IDN RFC reglna. Nánari ákvæði ganga í gildi 1. júlí 2004 þegar farið verður að skrá lén með séríslenskum stöfum. Sjá nánar grein 14. Bráðabirgðaákvæði. ] Grein 1.1.1 - Breytt grein gildir frá og með 20. október 2003 Fyrir breytingu: 1.1.1. Lén Lén er auðkenni á Internetinu. Lénnafn má einungis innihalda stafi úr enska stafrófinu, tölustafi og bandstrik. Lénnafn má ekki byrja eða enda á bandstriki. Lénnafn ásamt endingunni .is má ekki vera lengra en 66 stafir. Ekki er gerður greinarmunur á stórum og litlum stöfum í léni. Eftir breytingu: 1.1.1. Lén Lén er auðkenni á Internetinu. Lénnafn má einungis innihalda stafi úr enska stafrófinu, tölustafi og bandstrik. Lénnafn má ekki byrja eða enda á bandstriki, og má ekki innihalda bandstrik í þriðja og fjórða staf. Lénnafn ásamt endingunni .is má ekki vera lengra en 66 stafir. Ekki er gerður greinarmunur á stórum og litlum stöfum í léni. -- [Skýring Ný regla hvað varðar uppfærslu upplýsinga um aðsetur er að finna í grein 1.1.16. ] Grein 1.1.6. - Breytt grein tekur gildi 1. desember 2003 Fyrir breytingu: 1.1.6. Greiðandi Hlutverk greiðanda er að taka við tilkynningum/reikningum vegna léngjalda og ber hann jafnframt ábyrgð á greiðslu þeirra. Við skráningu á greiðanda er nafn hans skráð eins og það er í þjóðskrá hverju sinni. Ennfremur getur ISNIC uppfært aðrar upplýsingar um greiðanda samkvæmt þjóðskrá þar sem það á við. Slík uppfærsla er þó eingöngu framkvæmd í þeim tilfellum er bréf, send til greiðanda, komast ekki til skila og eru endursend til ISNIC. Eftir breytingu (athugasemd: sjá einnig nýja grein 1.1.16.): 1.1.6. Greiðandi Hlutverk greiðanda er að taka við tilkynningum/reikningum vegna léngjalda og ber hann jafnframt ábyrgð á greiðslu þeirra. -- [Skýring Skilyrt uppsögn hefur ekkert gildi eftir að umsóknir færast yfir á vef. Við umskráningu á vef tilgreinir stjórnunarlegur tengiliður nýjan rétthafa með því að setja inn nýjan rétthafa. ] Grein 1.1.16. - Grein fellur niður 1. janúar 2004 Fyrir niðurfellingu: 1.1.16. Skilyrt uppsögn á léni Skilyrt uppsögn felur í sér beiðni um umskráningu til nýs aðila. Við uppsögn þarf kennitala nýs aðila að koma fram. Nýr aðili verður að sækja um lénið innan tveggja (2) daga frá því að skilyrt uppsögn berst til ISNIC. Komi ekki umsókn um lénið innan tilskilins frests er uppsögn ógild og lén áfram skráð á fyrri aðila. -- [Skýring Áréttað er hvaða ábyrgð tengiliðir hafa. Þá er bent á að ISNIC uppfærir nöfn rétthafa skv. þjóðskrá eða fyrirtækjaskrá þar sem það á við. Tengiliðir geta haft annað aðsetur en það sem tilgreint er í þjóðskrá. Í þeim tilfellum er ISNIC fær endursenda tilkynningu getur ISNIC uppfært upplýsingar um heimilisfang. ] Grein 1.1.16. - Ný grein tekur gildi 1. desember 2003 1.1.16. Upplýsingar í rétthafaskrá Rétthafi og tengiliðir bera ábyrgð á að réttar upplýsingar séu skráðar í rétthafaskrá ISNIC. ISNIC uppfærir nöfn íslenskra rétthafa og tengiliða samkvæmt þjóðskrá og fyrirtækjaskrá daglega. ISNIC áskilur sér rétt til að uppfæra heimilisföng hjá íslenskum rétthöfum og tengiliðum til samræmis við þjóðskrá eða fyrirtækjaskrá í þeim tilfellum þegar gögn send í bréfapósti eru endursend til ISNIC. -- [Skýring Ástæðulaust að vísa í umsóknareyðublað þar eð umsóknir fara um vef ISNIC frá 1. janúar 2004. ] Grein 2.1. - Breytt grein tekur gildi 1. janúar 2004 Fyrir breytingu: 2.1. Almennt Umsækjandi sem óskar eftir að fá úthlutað léni skal senda umsókn til ISNIC ásamt greiðslu á stofngjaldi. Við umsókn skal notast við umsóknareyðublað ISNIC eða sækja um á þann rafræna máta sem ISNIC viðurkennir. Umsækjandi skal hafa hæfi til þess að skuldbinda sig eða viðkomandi lögaðila í samræmi við gildandi lög á hverjum tíma. Tengiliður rétthafa léns verður að hafa íslenskt ríkisfang. Eftir breytingu: 2.1. Almennt Umsækjandi sem óskar eftir að fá úthlutað léni gengur frá greiðslu á stofngjaldi léns og sækir síðan um lénið á vef ISNIC. Umsækjandi skal hafa hæfi til þess að skuldbinda sig eða viðkomandi lögaðila í samræmi við gildandi lög á hverjum tíma. Tengiliður rétthafa léns verður að hafa íslenskt ríkisfang. -- [Skýring Gert er ráð fyrir að gjaldtöku v/flutningsgjald verði hætt frá 1. janúar 2004 að telja í þeim tilvikum er tengiliðir framkvæma flutning um vef ISNIC. Flutningsgjald verður gjaldfært eftir 1. janúar 2004 sjái starfsmenn ISNIC um flutning. ] Grein 5.1. - Breytt grein tekur gildi 1. janúar 2004 Fyrir breytingu: 5.1. Ákveði rétthafi léns að breyta um vistunaraðila þess felur hann tengilið rétthafa léns að senda upplýsingar þar að lútandi til ISNIC. Breyting á vistun felur í sér flutningsgjald. Eftir breytingu: 5.1. Ákveði rétthafi léns að breyta um vistunaraðila þess felur hann tengilið rétthafa eða tæknilegum tengilið að framkvæma þá breytingu. Flutningsgjald er aðeins innheimt ef starfsmenn ISNIC sjá um breytingu að ósk aðila. -- [Skýring Umskráning verði einfaldlega breyting á kennitölu rétthafa. Erlendir aðilar breyti einfaldlega upplýsingum um rétthafa. ] Grein 6.1. - Breytt grein tekur gildi 1. janúar 2004 Fyrir breytingu: 6.1. Almennt Umskráning á léni felur í sér framsal á léni og breytingu á rétthafa léns. Nýr rétthafi þarf að fullnægja reglum ISNIC eins og um nýskráningu sé að ræða. Umskráning er meðhöndluð sem nýskráning af hálfu ISNIC og felur í sér umskráningargjald. Umskráningargjald þarf að greiða áður en lén er umskráð hjá ISNIC. Tengiliður rétthafa léns eða rétthafi sér um að koma beiðni um umskráningu til ISNIC. Eftir breytingu: 6.1. Almennt Umskráning á léni felur í sér framsal á léni og breytingu á rétthafa léns. Nýr rétthafi þarf að fullnægja reglum ISNIC eins og um nýskráningu sé að ræða. Umskráning er framkvæmd af tengilið núverandi rétthafa þannig að kennitölu rétthafa er breytt í kennitölu fyrirhugaðs rétthafa í rétthafaskrá ISNIC. -- [Skýring Aðgerð færð á vef ISNIC. ] Grein 6.2.1. - Breytt grein tekur gildi 1. janúar 2004 Fyrir breytingu: 6.2.1. Innlendur rétthafi sem hefur fengið úthlutað léni getur farið fram á umskráningu á léni hvenær sem er. Tengiliður rétthafa léns eða rétthafi sendir beiðni þess efnis til ISNIC. Eftir breytingu: 6.2.1. Innlendur rétthafi sem hefur fengið úthlutað léni getur umskráð lén hvenær sem er. Tengiliður rétthafa léns framkvæmir slíka breytingu rafrænt. -- [Skýring Breytt til samræmis við aðrar breytingar. ] Grein 7.1. - Breytt grein tekur gildi 1. janúar 2004 Fyrir breytingu: 7.1. Öllum umsóknum um stofnun léns, umsóknum um breytingu á vistun, umsóknum um umskráningu og vistun á biðsvæði skal fylgja greiðsla. Greiðslur geta verið með greiðslukorti, með greiðslu inn á bankareikning ISNIC eða með öðrum hætti sem ISNIC metur gildan. Eftir breytingu: 7.1. Meginreglan er að afnot af léni miðist við eitt ár í senn. Eindagi árgjalds er afmælisdagur (stofndagur) léns ár hvert. Umsóknum um stofnun léns og vistun á biðsvæði skal fylgja greiðsla. Greiðslur geta verið með greiðslukorti, greiðslu inn á bankareikning ISNIC eða með öðrum hætti sem ISNIC metur gildan. -- [Skýring Einföldun. ] Grein 7.3. - Breytt grein tekur gildi 1. desember 2003 Fyrir breytingu: 7.3. Sú meginregla gildir um greiðslur vegna léna að þær eru óafturkræfar. ISNIC endurgreiðir þó stofngjald hafi stofngjald verið greitt en umsókn hafnað. Ennfremur endurgreiðir ISNIC umskráningargjald hafi ekki verið hægt að skrá nýjan rétthafa í framhaldi af umskráningarbeiðni. Sækja verður um endurgreiðslu hjá ISNIC. Eftir breytingu: 7.3. ISNIC endurgreiðir stofngjald hafi stofngjald verið greitt en umsókn hafnað. Aðrar greiðslur vegna léna eru óafturkræfar. -- [Skýring Lokun léns er framkvæmd af ISNIC sé árgjald ekki greitt á eindaga. Eindagi greiðslu árgjalds er afmælisdagur léns. ] Grein 8.2. - Breytt grein tekur gildi 1. janúar 2004 Fyrir breytingu: 8.2. Meginreglan er að afnot af léni miðist við eitt ár í senn. Sé árgjald ekki greitt á eindaga falla öll réttindi rétthafa yfir léninu niður. Ef reikningur er sendur vegna árgjalds skal miða eindaga við 20. dag þess mánaðar sem lén var skráð. Annars skal miða eindaga við þann dag þess mánaðar sem lén var skráð. Ef reikningur er ekki sendur vegna árgjalds skal ISNIC senda áminningu um árgjald í tölvupósti til tengiliðs rétthafa lénsins og greiðanda lénsins mánuði áður en árgjald fellur í eindaga. Sé árgjald ógreitt á eindaga er léni lokað hjá ISNIC. Hafi léni verið lokað hjá ISNIC og opnað á ný fellur á það opnunargjald. Hafi lén verið lokað í 60 daga hjá ISNIC er það afskráð og afmáð, réttur yfir léni fellur niður og lénið er laust til umsóknar á ný. Eftir breytingu: 8.2. Meginreglan er að afnot af léni miðist við eitt ár í senn. Eindagi árgjalds er afmælisdagur (stofndagur) léns ár hvert. Sé árgjald ógreitt á eindaga er léni lokað hjá ISNIC. Hafi léni verið lokað hjá ISNIC og opnað á ný fellur á það opnunargjald. Hafi lén verið lokað í 60 daga hjá ISNIC er það afskráð og afmáð, réttur yfir léni fellur niður og lénið er laust til umsóknar á ný. -- [Skýring Úthlutun og skráning léna með séríslenska stafi hefur hingað til ekki verið leyfð þar eð staðla hefur vantað. Nú liggja staðlar fyrir er varða meðhöndlun á lénum sem innihalda aðra stafi en þá sem tilheyra enska stafasettingu. Nokkurn undirbúning þarf þó til þess að unnt sé að úthluta slíkum lénum. Meðfylgjandi bráðabirgðaákvæði snýr að úthlutun léna með séríslenskum stöfum. ] Grein 14. Bráðabirgðaákvæði - tekur gildi 1. júlí 2004 14. Bráðabirgðaákvæði Bráðabirgðaákvæði vegna skráningar léna sem innihalda séríslenska stafi Þann 1. júlí 2004 hefst skráning .is léna sem innihalda séríslensku stafina á ð é í ó ú ý þ æ ö Rétthafi léns sem er stafsett án séríslenskra stafa hefur forgang í sex mánuði, tímabilið 1. júlí 2004 til 31. desember 2004, á skráningu léns með séríslenskum stöfum þar sem er að finna fullkomna vörpun milli léns, stafsett með séríslenskum stöfum, og léns stafsett án séríslenskra stafa, sbr. eftirfarandi töflu: á -> a ð -> d é -> e í -> i ó -> o ú -> u ý -> y þ -> th æ -> ae ö -> o Skráning á léni með séríslenska stafi veitir ekki rétt á skráningu á léni sem stafsett er án séríslenskra stafa. Forgangsskráning fellur niður eftir 31. desember 2004 og gildir þá reglan "fyrir kemur fyrstur fær" fyrir öll .is lén sem innihalda séríslenska stafi. Við gildistöku bráðabirgðaákvæðis, 1. júlí 2004, breytist grein 1.1.1 og verður: 1.1.1. Lén Lén er auðkenni á Internetinu. Lénnafn má einungis innihalda stafi úr enska stafrófinu, tölustafi og bandstrik og íslensku stafina áéýúíó og þæö. Lénnafn má ekki byrja eða enda á bandstriki, og má ekki innihalda bandstrik í þriðja og fjórða staf. Lénnafn ásamt endingunni .is má ekki vera lengra en 66 stafir, ACE umritun léns með íslenskum stöfum má ekki vera lengri en 59 stafir. Ekki er gerður greinarmunur á stórum og litlum stöfum í léni. -- -- Helgi Jonsson, framkvæmdastjóri (Manager) hjons@isnic.is Internet Iceland - ISNIC Taeknigardur phone +354-525-4950 Dunhagi 5 fax +354-561-0999 IS-107 Reykjavik Iceland homepage www.isnic.is
Góðan daginn, Mér finnst að það ætti að lækka árgjald í 3500 krónur og hækka þá stofngjald um 5000 krónur. Mér finnst mjög sniðugt að rukka ekki fyrir flutningsgjald enn mér finnst líka að það ætti að það ætti kannski að kosta um 2500 krónur að breyta nafninu á léninu. Og ég reikna með að margir eigi eftir að vilja það þegar að séríslenskir stafir koma inn í kerfið. Kveðja, Björn Þór Karlsson Veffang: http://www.bjossi.is Netfang: bjossi@bjossi.is Sími: 691-9818 -----Original Message----- From: domain-bounces@lists.isnic.is [mailto:domain-bounces@lists.isnic.is] On Behalf Of Helgi Jonsson Sent: 20. október 2003 10:24 To: domain@lists.isnic.is Subject: [Domain] Tillögur um breytingar á reglum um skráningu og stjórnun léna undir .is Ágætu netverjar, óskað er eftir athugasemdum vegna meðfylgjandi tillagna um breytingar á reglum um úthlutun og stjórnun á léninu .is Meginástæður breytinga eru þessar: a) Árleg léngjöld verða reikningsfærð á þann máta að eindagi greiðslu árgjalds miðast við afmælisdag lénsins. Reikningar verða sendir út tímanlega fyrir afmælisdag léns. Léni verður lokað hafi greiðsla ekki borist á eindaga. Breyting miðast við lén sem eiga afmæli eftir 31. desember 2003. b) Opnað verður fyrir skráningu á lénum um vef ISNIC 1. janúar 2004. Skráning verður alfarið um vefinn frá þessum tíma og hætt verður að taka við umsóknum bréfleiðis eða um fax. c) Flutningsgjald verður ekki innheimt eftir 1. janúar 2004 sé flutningur framkvæmdur um vef ISNIC. d) Þann 1. júlí 2004 verður opnað fyrir skráningu léna sem innihalda séríslenska stafi. Mismunandi er hvenær ætlað er að breytingar taka gildi. Kv, Helgi Jónsson -- [Skýring Til að gera mögulegt að ská lén skv. IDN RFC reglum, lén með séríslenskum stöfum. Þessi breyting verður að taka gildi strax vegna tæknilegra áhrifa IDN RFC reglna. Nánari ákvæði ganga í gildi 1. júlí 2004 þegar farið verður að skrá lén með séríslenskum stöfum. Sjá nánar grein 14. Bráðabirgðaákvæði. ] Grein 1.1.1 - Breytt grein gildir frá og með 20. október 2003 Fyrir breytingu: 1.1.1. Lén Lén er auðkenni á Internetinu. Lénnafn má einungis innihalda stafi úr enska stafrófinu, tölustafi og bandstrik. Lénnafn má ekki byrja eða enda á bandstriki. Lénnafn ásamt endingunni .is má ekki vera lengra en 66 stafir. Ekki er gerður greinarmunur á stórum og litlum stöfum í léni. Eftir breytingu: 1.1.1. Lén Lén er auðkenni á Internetinu. Lénnafn má einungis innihalda stafi úr enska stafrófinu, tölustafi og bandstrik. Lénnafn má ekki byrja eða enda á bandstriki, og má ekki innihalda bandstrik í þriðja og fjórða staf. Lénnafn ásamt endingunni .is má ekki vera lengra en 66 stafir. Ekki er gerður greinarmunur á stórum og litlum stöfum í léni. -- [Skýring Ný regla hvað varðar uppfærslu upplýsinga um aðsetur er að finna í grein 1.1.16. ] Grein 1.1.6. - Breytt grein tekur gildi 1. desember 2003 Fyrir breytingu: 1.1.6. Greiðandi Hlutverk greiðanda er að taka við tilkynningum/reikningum vegna léngjalda og ber hann jafnframt ábyrgð á greiðslu þeirra. Við skráningu á greiðanda er nafn hans skráð eins og það er í þjóðskrá hverju sinni. Ennfremur getur ISNIC uppfært aðrar upplýsingar um greiðanda samkvæmt þjóðskrá þar sem það á við. Slík uppfærsla er þó eingöngu framkvæmd í þeim tilfellum er bréf, send til greiðanda, komast ekki til skila og eru endursend til ISNIC. Eftir breytingu (athugasemd: sjá einnig nýja grein 1.1.16.): 1.1.6. Greiðandi Hlutverk greiðanda er að taka við tilkynningum/reikningum vegna léngjalda og ber hann jafnframt ábyrgð á greiðslu þeirra. -- [Skýring Skilyrt uppsögn hefur ekkert gildi eftir að umsóknir færast yfir á vef. Við umskráningu á vef tilgreinir stjórnunarlegur tengiliður nýjan rétthafa með því að setja inn nýjan rétthafa. ] Grein 1.1.16. - Grein fellur niður 1. janúar 2004 Fyrir niðurfellingu: 1.1.16. Skilyrt uppsögn á léni Skilyrt uppsögn felur í sér beiðni um umskráningu til nýs aðila. Við uppsögn þarf kennitala nýs aðila að koma fram. Nýr aðili verður að sækja um lénið innan tveggja (2) daga frá því að skilyrt uppsögn berst til ISNIC. Komi ekki umsókn um lénið innan tilskilins frests er uppsögn ógild og lén áfram skráð á fyrri aðila. -- [Skýring Áréttað er hvaða ábyrgð tengiliðir hafa. Þá er bent á að ISNIC uppfærir nöfn rétthafa skv. þjóðskrá eða fyrirtækjaskrá þar sem það á við. Tengiliðir geta haft annað aðsetur en það sem tilgreint er í þjóðskrá. Í þeim tilfellum er ISNIC fær endursenda tilkynningu getur ISNIC uppfært upplýsingar um heimilisfang. ] Grein 1.1.16. - Ný grein tekur gildi 1. desember 2003 1.1.16. Upplýsingar í rétthafaskrá Rétthafi og tengiliðir bera ábyrgð á að réttar upplýsingar séu skráðar í rétthafaskrá ISNIC. ISNIC uppfærir nöfn íslenskra rétthafa og tengiliða samkvæmt þjóðskrá og fyrirtækjaskrá daglega. ISNIC áskilur sér rétt til að uppfæra heimilisföng hjá íslenskum rétthöfum og tengiliðum til samræmis við þjóðskrá eða fyrirtækjaskrá í þeim tilfellum þegar gögn send í bréfapósti eru endursend til ISNIC. -- [Skýring Ástæðulaust að vísa í umsóknareyðublað þar eð umsóknir fara um vef ISNIC frá 1. janúar 2004. ] Grein 2.1. - Breytt grein tekur gildi 1. janúar 2004 Fyrir breytingu: 2.1. Almennt Umsækjandi sem óskar eftir að fá úthlutað léni skal senda umsókn til ISNIC ásamt greiðslu á stofngjaldi. Við umsókn skal notast við umsóknareyðublað ISNIC eða sækja um á þann rafræna máta sem ISNIC viðurkennir. Umsækjandi skal hafa hæfi til þess að skuldbinda sig eða viðkomandi lögaðila í samræmi við gildandi lög á hverjum tíma. Tengiliður rétthafa léns verður að hafa íslenskt ríkisfang. Eftir breytingu: 2.1. Almennt Umsækjandi sem óskar eftir að fá úthlutað léni gengur frá greiðslu á stofngjaldi léns og sækir síðan um lénið á vef ISNIC. Umsækjandi skal hafa hæfi til þess að skuldbinda sig eða viðkomandi lögaðila í samræmi við gildandi lög á hverjum tíma. Tengiliður rétthafa léns verður að hafa íslenskt ríkisfang. -- [Skýring Gert er ráð fyrir að gjaldtöku v/flutningsgjald verði hætt frá 1. janúar 2004 að telja í þeim tilvikum er tengiliðir framkvæma flutning um vef ISNIC. Flutningsgjald verður gjaldfært eftir 1. janúar 2004 sjái starfsmenn ISNIC um flutning. ] Grein 5.1. - Breytt grein tekur gildi 1. janúar 2004 Fyrir breytingu: 5.1. Ákveði rétthafi léns að breyta um vistunaraðila þess felur hann tengilið rétthafa léns að senda upplýsingar þar að lútandi til ISNIC. Breyting á vistun felur í sér flutningsgjald. Eftir breytingu: 5.1. Ákveði rétthafi léns að breyta um vistunaraðila þess felur hann tengilið rétthafa eða tæknilegum tengilið að framkvæma þá breytingu. Flutningsgjald er aðeins innheimt ef starfsmenn ISNIC sjá um breytingu að ósk aðila. -- [Skýring Umskráning verði einfaldlega breyting á kennitölu rétthafa. Erlendir aðilar breyti einfaldlega upplýsingum um rétthafa. ] Grein 6.1. - Breytt grein tekur gildi 1. janúar 2004 Fyrir breytingu: 6.1. Almennt Umskráning á léni felur í sér framsal á léni og breytingu á rétthafa léns. Nýr rétthafi þarf að fullnægja reglum ISNIC eins og um nýskráningu sé að ræða. Umskráning er meðhöndluð sem nýskráning af hálfu ISNIC og felur í sér umskráningargjald. Umskráningargjald þarf að greiða áður en lén er umskráð hjá ISNIC. Tengiliður rétthafa léns eða rétthafi sér um að koma beiðni um umskráningu til ISNIC. Eftir breytingu: 6.1. Almennt Umskráning á léni felur í sér framsal á léni og breytingu á rétthafa léns. Nýr rétthafi þarf að fullnægja reglum ISNIC eins og um nýskráningu sé að ræða. Umskráning er framkvæmd af tengilið núverandi rétthafa þannig að kennitölu rétthafa er breytt í kennitölu fyrirhugaðs rétthafa í rétthafaskrá ISNIC. -- [Skýring Aðgerð færð á vef ISNIC. ] Grein 6.2.1. - Breytt grein tekur gildi 1. janúar 2004 Fyrir breytingu: 6.2.1. Innlendur rétthafi sem hefur fengið úthlutað léni getur farið fram á umskráningu á léni hvenær sem er. Tengiliður rétthafa léns eða rétthafi sendir beiðni þess efnis til ISNIC. Eftir breytingu: 6.2.1. Innlendur rétthafi sem hefur fengið úthlutað léni getur umskráð lén hvenær sem er. Tengiliður rétthafa léns framkvæmir slíka breytingu rafrænt. -- [Skýring Breytt til samræmis við aðrar breytingar. ] Grein 7.1. - Breytt grein tekur gildi 1. janúar 2004 Fyrir breytingu: 7.1. Öllum umsóknum um stofnun léns, umsóknum um breytingu á vistun, umsóknum um umskráningu og vistun á biðsvæði skal fylgja greiðsla. Greiðslur geta verið með greiðslukorti, með greiðslu inn á bankareikning ISNIC eða með öðrum hætti sem ISNIC metur gildan. Eftir breytingu: 7.1. Meginreglan er að afnot af léni miðist við eitt ár í senn. Eindagi árgjalds er afmælisdagur (stofndagur) léns ár hvert. Umsóknum um stofnun léns og vistun á biðsvæði skal fylgja greiðsla. Greiðslur geta verið með greiðslukorti, greiðslu inn á bankareikning ISNIC eða með öðrum hætti sem ISNIC metur gildan. -- [Skýring Einföldun. ] Grein 7.3. - Breytt grein tekur gildi 1. desember 2003 Fyrir breytingu: 7.3. Sú meginregla gildir um greiðslur vegna léna að þær eru óafturkræfar. ISNIC endurgreiðir þó stofngjald hafi stofngjald verið greitt en umsókn hafnað. Ennfremur endurgreiðir ISNIC umskráningargjald hafi ekki verið hægt að skrá nýjan rétthafa í framhaldi af umskráningarbeiðni. Sækja verður um endurgreiðslu hjá ISNIC. Eftir breytingu: 7.3. ISNIC endurgreiðir stofngjald hafi stofngjald verið greitt en umsókn hafnað. Aðrar greiðslur vegna léna eru óafturkræfar. -- [Skýring Lokun léns er framkvæmd af ISNIC sé árgjald ekki greitt á eindaga. Eindagi greiðslu árgjalds er afmælisdagur léns. ] Grein 8.2. - Breytt grein tekur gildi 1. janúar 2004 Fyrir breytingu: 8.2. Meginreglan er að afnot af léni miðist við eitt ár í senn. Sé árgjald ekki greitt á eindaga falla öll réttindi rétthafa yfir léninu niður. Ef reikningur er sendur vegna árgjalds skal miða eindaga við 20. dag þess mánaðar sem lén var skráð. Annars skal miða eindaga við þann dag þess mánaðar sem lén var skráð. Ef reikningur er ekki sendur vegna árgjalds skal ISNIC senda áminningu um árgjald í tölvupósti til tengiliðs rétthafa lénsins og greiðanda lénsins mánuði áður en árgjald fellur í eindaga. Sé árgjald ógreitt á eindaga er léni lokað hjá ISNIC. Hafi léni verið lokað hjá ISNIC og opnað á ný fellur á það opnunargjald. Hafi lén verið lokað í 60 daga hjá ISNIC er það afskráð og afmáð, réttur yfir léni fellur niður og lénið er laust til umsóknar á ný. Eftir breytingu: 8.2. Meginreglan er að afnot af léni miðist við eitt ár í senn. Eindagi árgjalds er afmælisdagur (stofndagur) léns ár hvert. Sé árgjald ógreitt á eindaga er léni lokað hjá ISNIC. Hafi léni verið lokað hjá ISNIC og opnað á ný fellur á það opnunargjald. Hafi lén verið lokað í 60 daga hjá ISNIC er það afskráð og afmáð, réttur yfir léni fellur niður og lénið er laust til umsóknar á ný. -- [Skýring Úthlutun og skráning léna með séríslenska stafi hefur hingað til ekki verið leyfð þar eð staðla hefur vantað. Nú liggja staðlar fyrir er varða meðhöndlun á lénum sem innihalda aðra stafi en þá sem tilheyra enska stafasettingu. Nokkurn undirbúning þarf þó til þess að unnt sé að úthluta slíkum lénum. Meðfylgjandi bráðabirgðaákvæði snýr að úthlutun léna með séríslenskum stöfum. ] Grein 14. Bráðabirgðaákvæði - tekur gildi 1. júlí 2004 14. Bráðabirgðaákvæði Bráðabirgðaákvæði vegna skráningar léna sem innihalda séríslenska stafi Þann 1. júlí 2004 hefst skráning .is léna sem innihalda séríslensku stafina á ð é í ó ú ý þ æ ö Rétthafi léns sem er stafsett án séríslenskra stafa hefur forgang í sex mánuði, tímabilið 1. júlí 2004 til 31. desember 2004, á skráningu léns með séríslenskum stöfum þar sem er að finna fullkomna vörpun milli léns, stafsett með séríslenskum stöfum, og léns stafsett án séríslenskra stafa, sbr. eftirfarandi töflu: á -> a ð -> d é -> e í -> i ó -> o ú -> u ý -> y þ -> th æ -> ae ö -> o Skráning á léni með séríslenska stafi veitir ekki rétt á skráningu á léni sem stafsett er án séríslenskra stafa. Forgangsskráning fellur niður eftir 31. desember 2004 og gildir þá reglan "fyrir kemur fyrstur fær" fyrir öll .is lén sem innihalda séríslenska stafi. Við gildistöku bráðabirgðaákvæðis, 1. júlí 2004, breytist grein 1.1.1 og verður: 1.1.1. Lén Lén er auðkenni á Internetinu. Lénnafn má einungis innihalda stafi úr enska stafrófinu, tölustafi og bandstrik og íslensku stafina áéýúíó og þæö. Lénnafn má ekki byrja eða enda á bandstriki, og má ekki innihalda bandstrik í þriðja og fjórða staf. Lénnafn ásamt endingunni .is má ekki vera lengra en 66 stafir, ACE umritun léns með íslenskum stöfum má ekki vera lengri en 59 stafir. Ekki er gerður greinarmunur á stórum og litlum stöfum í léni. -- -- Helgi Jonsson, framkvæmdastjóri (Manager) hjons@isnic.is Internet Iceland - ISNIC Taeknigardur phone +354-525-4950 Dunhagi 5 fax +354-561-0999 IS-107 Reykjavik Iceland homepage www.isnic.is _______________________________________________ Domain mailing list Domain@lists.isnic.is http://lists.isnic.is/mailman/listinfo/domain
participants (2)
-
Björn Þór Karlsson
-
Helgi Jonsson