30. ágúst 2002 Breyting á reglum um skráningu léna. Sú breyting verður gerð 1. október n.k. að greiðandi kemur í stað tengiliðs greiðanda. Grein 1.1.6. í reglum ISNIC breytist sem hér segir: 1.1.6. Greiðandi Greiðandi tekur við tilkynningum/reikningum vegna léngjalda og ber ábyrgð á greiðslu þeirra. ISNIC getur uppfært upplýsingar um greiðanda samkvæmt þjóðskrá þar sem það á við. Uppfærsla er eingöngu framkvæmd í þeim tilfellum er bréf, send til greiðanda, komast ekki til skila og eru endursend til ISNIC. Uppfærð umsóknareyðublöð verða sett á vef ISNIC innan skamms. Upplýsingar um greiðanda hafa ekki verið skráðar í rétthafaskrá (whois gagnagrunni) hingað til. Þessu verður breytt fyrir 1. október 2002 og verður greiðandi tilgreindur fyrir hvert lén í stað tengiliðs greiðanda. Þá verður tekin í notkun nýr vefur 1. október 2002 þar sem unnt verður að breyta upplýsingum um rétthafa, tengiliði og greiðanda um vef ISNIC. -- Helgi Jonsson, framkvæmdastjóri (Manager) hjons@isnic.is Internet Iceland - ISNIC Taeknigardur phone +354-525-4950 Dunhagi 5 fax +354-561-0999 IS-107 Reykjavik Iceland homepage www.isnic.is
participants (1)
-
Helgi Jonsson