On Wed, Oct 17, 2001 at 02:52:56PM -0000, Leifur A. Haraldsson wrote:
Tillaga um nýja reglu (regla er ekki til í núverandi reglum):
1.1.16
Skilyrt uppsögn á léni
Skilyrt uppsögn felur í sér beiðni um umskráningu til nýs aðila. Við uppsögn þarf kennitala nýs aðila að koma fram. Nýr aðili verður að sækja um lénið innan tveggja daga frá því að skilyrt uppsögn berst til ISNIC. Komi ekki umsókn um lénið innan tilskilins frests er uppsögn ógild og lén áfram skráð á fyrri aðila.
*** Þessi er mjög tímabær, ef ég skil þetta rétt er þá verið að auðvelda þeim sem vilja færa lén á milli aðila að framkvæma það og þ.a.l. selja það?
Þetta ákvæði er sett inn til að auðvelda eðlilegar færslur á lénum milli aðila. Nokkuð hefur verið um að fyrirtæki renni saman eða hætti og önnur taki við. Önnur dæmi má taka um eðlilegt framsal á lénum. Í þannig tilfellum þykir mjög eðlilegt að rétthafi geti framselt lén sitt í þeirri vissu að lénið gangi til ákveðins aðila.
Tillaga:
2.2.2. Engin takmörk eru á fjölda léna sem innlendur umsækjandi getur skráð í sínu nafni.
*** Mjög svo í takt við nútímann, mér líst mjög vel á þetta. Enda enginn ástæða til að hafa 15 á mann. Að öllu jöfnu sýnist mér isnic vera að þróast í rétta átt og sé ég ekkert athugavert við þessar breytingar.
Með kveðju, Leifur A. Haraldsson
_______________________________________________ Domain mailing list Domain@lists.isnic.is http://lists.isnic.is/mailman/listinfo/domain
-- Helgi Jonsson, framkvæmdastjóri (director) hjons@isnic.is Internet Iceland - ISNIC Taeknigardur phone +354-525-4950 Dunhagi 5 fax +354-561-0999 IS-107 Reykjavik Iceland homepage www.isnic.is