Uppboð á lénum Boðin verða upp lén, sem hafa hingað til verið frátekin og ekki úthlutað áður, í tvennu lagi. Í fyrra uppboði verða aðeins eins-bókstafs lén. Í síðara uppboðinu, sem verður að öllum líkindum í mars/apríl 2002, verða eftirtalin lén á uppboði: web.is, shop.is, firm.is, nom.is, arts.is, rec.is, usenet.is, ftp.is, www.is, who.is, telnet.is, irc.is, mail.is, internet.is og island.is ásamt lénum þar sem nafn léns inniheldur aðeins tölustafi. Uppboðin verða auglýst í dagblöðum og sjónvarpi. Sjá nánar vef ISNIC, www.isnic.is -- Uppboð í vetrarbyrjun 2001 Internet á Íslandi hf. ISNIC, hefur ákveðið að bjóða upp eftirtalin lén í samræmi við bráðabirgðaákvæði A í reglum um skráningu léna og stjórnun á léninu .is Um er að ræða eins stafs lén sem takmarkast við bókstafi úr ensku stafrófi. Lénin eru eftirtalin, alls 26 lén: a.is b.is c.is d.is e.is f.is g.is h.is i.is j.is k.is l.is m.is n.is o.is p.is q.is r.is s.is t.is u.is v.is w.is x.is y.is z.is Eru lénin boðin upp með þeim hætti að skilað er inn skriflegum tilboðum til ISNIC sem opnuð verða þann 4. janúar 2002 kl. 13:00 í Tæknigarði, Dunhaga 5, IS-107 Reykjavík. Öllum frjálst að fylgjast með opnun tilboða. Eftirfarandi skilmálar gilda um þátttöku í uppboðinu. Uppfylli tilboð þátttakanda að einhverju leyti þau skilyrði sem sett eru verður litið á tilboðið sem ógilt og verður ekki tekið tillit til þess. a) Frestur til að skila inn tilboðum er til lok dagsins 14. desember 2001. b) Virðisaukaskattur 24,5% leggst ofan á tilboðsupphæð. c) Lágmarksupphæð fyrir hvert lén er kr. 10.000,-. d) Hvert lén er boðið upp sérstaklega og verða þátttakendur að gera tilboð í hvert lén fyrir sig. e) Hver þátttakandi getur boðið í fleiri en eitt lén, en þó gert einungis eitt tilboð í hvert þeirra. f) Hæsta boði verður tekið í hverju tilviki fyrir sig. Verði boð jöfn ræður hlutkesti. g) Öll tilboð renna út 31. janúar 2002 og eru þáttakendur í uppboðinu bundnir við boð sín þar til. Lén sem boðin eru upp og enn eru óskráð í lok 31. janúar 2002 verða laus til almennrar umsóknar 1. febrúar 2002. h) Þann 8. janúar 2002 verða lén, sem boðin eru upp, birt á vef ISNIC ásamt nöfnum handhafa hæstu boða. Hafa hlutaðeigandi þá fjögurra (4) virkra daga frest til að ganga frá umsókn, greiðslu og vistun á léninu samkvæmt reglum ISNIC svo unnt sé að skrá það. Falli handhafi frá tilboði með því að ganga ekki frá nauðsynlegum atriðum svo skrá megi lénið er næsthæsta boði tekið með birtingu á léni og handhafa næsthæsta tilboðs á vef ISNIC og svo koll af kolli. i) Þátttakendur í uppboðinu eru bundnir við boð sín allt þar til þau lén sem þeir buðu í hafa verið greidd og vistuð. j) Árgjald af þeim lénum sem boðin eru upp skulu greidd samkvæmt reglum ISNIC árlega eftir ár frá skráningu lénanna. k) Eftirfarandi upplýsingar skulu koma fram í tilboðum: 1. Nafn og kennitala þátttakanda í uppboðinu. 2. Heimilsfang þátttakenda. 3. Netfang þátttakenda ef hann hefur slíkt. 4. Lén sem boðið er í (t.d. a.is) 5. Upphæð sem boðin er í íslenskum krónum. l) Tilboð skulu undirrituð og send í ábyrgðarbréfi stílað á: Internet á Íslandi hf. b/t uppboð Tæknigarði Dunhaga 5 IS-107 Reykjavík -- Helgi Jonsson, framkvæmdastjóri (director) hjons@isnic.is Internet Iceland - ISNIC Taeknigardur phone +354-525-4950 Dunhagi 5 fax +354-561-0999 IS-107 Reykjavik Iceland homepage www.isnic.is