Haukur, Þann 10. desember 2003, ritaði Haukur K. Bragason eitthvað á þessa leið:
Það var sett fram til að benda á að hugsanlega væru til aðilar sem vildu skrá fleiri en eitt afbrigði af lénum sínum með séríslenskum stöfum. Og myndu þá þurfa að horfast í augu við enn meiri kostnaðarauka en þann sem að mér heyrist af orðum þínum að þér finnist nægjanlegur til að leyfa ekki lénaskráningar með séríslenskum stöfum að svo stöddu.
Kannski vill einhver skrá fleira en eitt afbrigði þó ég myndi ekki gera það, ég hef alltaf álitið að lénið sem fólk skráði eins og t.d. jolaljos.is sé bara afbrigði af einu léni, í þessu tilviki jólaljós.is og finnst mér persónulega allt í lagi að veita afslátt af þeirri skráningu en get því miður bara ekki séð rökin fyrir hinum tveim skráningunum, ef fólk vill endilega fara útí svoleiðis þá má það alveg borga fyrir það.
Mér sýnist Isnic standa frammi fyrir tveimur kostum. Leyfa lénaskráningar með séríslenskum stöfum og fá kvartanir vegna kostnaðarauka. Leyfa EKKI lénaskráningar með séríslenskum stöfum og fá kvartanir vegna takmarkaðrar þjónustu.
Ég held að rétt sé að velja fyrri kostinn og taka upp skráningar með séríslenskum stöfum og að þær úthlutunarreglur sem stungið hefur verið uppá séu góðar. Þegar ákveðið hefur verið að bjóða upp á þessa nýju þjónustu finnst mér eðlilegt að ræða kosnaðinn sem af því hlýst.
Ég er sammála þér þar.
Vil því ítreka þá hugmynd að veita afslátt á viðbótarlénum gegn því að skráningarupplýsingar væru eins fyrir bæði/öll lénin.
Þarna hefði ég viljað sjá "viðbótarléni" :-)
Þætti vænt um að fá viðbrögð frá starfsmönnum Isnic hvor þetta sé tæknilega fýsilegt að þeirra mati. Þ.e.a.s. hvort hægt væri að aðlaga þeirra kerfi og vinnubrögð þannig að uppfæra mætti skráningu fleiri en eins léns í einu sem væri forsenda þess að veita afslátt skv. þeirri hugmynd sem ég kastaði fram.
Okkar kerfi er nú hannað með það fyrir augum að hvert lén standi eitt og sér en ekki hluti af einhverri grúppu, ég sé fram á að þetta sem þú biður um myndi valda því að ISNIC þyrfti að gera töluverðar breytingar á sínu kerfi sem yrðu aldrei tilbúnar fyrir þá dagsetningu sem lögð hefur verið fram hér. (1. júlí 2004)
Slíkt aðlögun myndi augljóslega hafa meiri kostnað í för með sér fyrir Isnic í byrjun, en gæti haft minni kostnaðarauka í för með sér fyrir viðskiptavini.
Þetta er væntanlega spurning um það hvernig aukinn kostnaður við innleiðingu séríslenskra stafa skiptist milli Isnic og viðskiptavina þess.
Ég tel mjög líklegt að sá kostnaður sem ISNIC þyrfti að leggja út í við breytingar á skráningarkerfinu myndu endurspeglast í gjaldskránni.
Ég held að samanburður á kostnaði við íslensk lén og erlend sé tæplega raunhæfur, og slíkri umræðu eigi að halda aðskildri frá þeirri umræðu hvort og hvernig eigi að taka upp séríslenska stafi í lénanöfnum. Finnst samt eðlilegt að ræða kostnaðaraukann í samhengi við breytingarnar.
Sammála... Af gefnu tilefni langar mig að taka fram að ég hef ekkert með gjaldskrá ISNIC að segja og tjái mínar persónulegu skoðanir á þessum póstlista. /Óli -- Ólafur Osvaldsson Kerfisstjóri Internet á Íslandi hf. Sími: 525-5291 Email: oli@isnic.is