Stjórn ISNIC hefur ákveðið að lækka verulega gjöld vegna stofnunar og endurnýjunar á lénum með sérstöfum í þeim tilfellum er sami aðili skráir lén stafsett bæði með og án íslenskra sérstafa. Við skráningu á léni með íslenskum sérstöfum er kannað hvort sami aðili hafi þegar skráð "tilsvarandi" lén án íslenskra sérstafa. Með "tilsvarandi" er átt við lén sem til verður þegar séríslenskir stafir IDN lénsins eru umritaðir skv eftirfarandi töflu: þ -> th á -> a í -> i æ -> ae é -> e ó -> o ö -> o ý -> y ð -> d ú -> u Ef lénið sem þannig er myndað úr léni með séríslenskum stöfum er skráð á sama rétthafa er veittur 90% afsláttur af bæði stofngjaldi og árgjaldi. Gjaldskrá vegna stofnunar og endurnýjunar léna frá og með 17. maí 2005. Stofngjald Vegna stofnunar á léni. Innifalið í stofngjaldi er árgjald fyrsta árið. a) Stofngjald léns án sérstafs, áéðíóúýþæö, er kr. 12.450.- b) Veittur er 50% afsláttur vegna skráningar á léni sem inniheldur sérstaf, stofngjald með 50% afslætti er kr. 6.225,- c) Veittur er 90% afsláttur vegna skráningar á léni með sérstöfum ef rétthafi léns er þegar skráður rétthafi tilsvarandi léns án íslenskra stafa, stofngjald með 90% afslætti er kr. 1.245,- Árgjald Árlegt endurnýjunargjald vegna léns. a) Árgjald léns án sérstafs, áéðíóúýþæö, er kr. 7.918,- b) Veittur er 50% afsláttur af árgjaldi léns sem inniheldur sérstaf, árgjald með 50% afslætti er kr. 3.959,- c) Veittur er 90% afsláttur af árgjaldi léns með sérstöfum ef rétthafi léns er þegar skráður rétthafi tilsvarandi léns án íslenskra stafa, árgjald með 90% afslætti er kr. 792,- -- Helgi Jonsson, framkvæmdastjóri (Manager) hjons@isnic.is Internet Iceland - ISNIC Taeknigardur phone +354-525-4950 Dunhagi 5 fax +354-561-0999 IS-107 Reykjavik Iceland homepage www.isnic.is