Eins og kunnugt er þá samþykkti stjórn ISNIC í haust að aflétta skilyrði um innlendan tengilið rétthafa. Í tillögu að breytingu á reglu 2.3.1. var gert ráð fyrir að erlendir rétthafar léna yrðu að tilgreina skráðan umboðsmann eða þjónustuaðila hjá ISNIC sem tengilið rétthafa. Áður auglýstar breytingar reyndust því miður ekki framkvæmanlegar. Því eru hér gerðar smávægilegar breytingar á fyrri tillögu í þá veru að rétthafinn getur ávallt verið eigin tengiliður kjósi hann svo, rétt eins og innlendir rétthafar léna. Þótt breytingar á reglunum séu litlar þýða þær í raun að eftir standa allir jafnfætis gagnvart skráninum .is léna. Innlendum fyrirtækjum og einstaklingum með íslenska kennitölu verður þó, tæknilega séð, gert hærra undir höfði. Með tenginum ISNIC við Fyrirtækjaskrá og Þjóðskrá vottar ISNIC framvegis rafrænt skráningar .is léna. Þetta má þegar sjá með því að slá lénum íslenskra aðila upp í rétthafaskrá ISNIC (whois). ISNIC er mjög umhugað um réttmæti skráninga og áreiðanleika ISNIC gagnagrunnsins. Til þess að tryggja áframhaldandi mikinn trúverðugleika .is léna, sem byggist að verulegu leyti á því að upplýsingar um rétthafa séu réttar, þarf ISNIC heimildir til þess að loka lénum sem ekki fullnægja kröfum ISNIC um upplýsingar um rétthafa og tengiliði eins og áður kom fram. Lagt er til að breytingarnar taki eftir sem áður gildi 29. október 2008. Kveðja, Jens Pétur Jensen hagfr. framkvæmdastjóri Internet á Íslandi hf. (ISNIC) Tæknigarði, Dunhaga 7 107 Reykjavik.