Sæll! Nei, annað er útlenskt, NSR, og hitt er óformlegur félagsskapur sem ugglaust er hægt að fá kennitölu fyrir. Varðandi réttinn til að eiga lén sjálfur þá vísa ég til umræðna um fjölda léna sem hver og einn má skrá, mér finnst að takmarkanir eigi að vera sem fæstar. Varðandi það að aðrir taki við þá er það hið besta mál, við tilkynnum breytingu til Intís. ;-) Þann 13. september 2000 skrifaði Ólafur Ósvaldsson: ..... Greiðandi þarf ekki að vera sá sami og umsækjandi. Til að byrja með finnst mér rangt að þessi lén væru skráð á þig sem einstakling, hvað ætti að gera ef að þú létir svo af störfum fyrir þessi félög, þá hafa þeir engan rétt, lénin fylgja þér. Eins ef þú ætlar að fá þér þitt eigið lén seinna, þá ertu búinn að fyrirgera þér þeim rétti ef þú notar kennitölu þína í að skrá lén fyrir aðra. Með bestu kveðju Halldór Kristjánsson, framkvæmdastjóri ------------------------------------------------------------------ Ráðgjafi í upplýsingatækni, (Information Technology Consultant) Tölvu- og verkfræðiþjónustan, Grensásvegi 16, 108 Reykjavík Ísland / Iceland Sími / Tel: (354) 520 9000; Fax: (354) 520 9009 Netfang / E-mail: halldor@tv.is; Heimasíða/URL: www.tv.is ---------------------------------------------------------------