Sælir ágætu félagar! Mér varð á sú bjartsýni að sækja um 2 lén. Annað fyrir MR árganginn minn sem ætlar að koma sér upp vefsíðu. Þar sem ég er gjaldkerinn fannst mér eðlilegast að ég væri gerður ábyrgur fyrir greiðslum og þar með léninu og sótti um mr72.is. Hitt er lén sem varðar starf norrænna Lionsmanna. Ég er ritari (framkvæmdastjóri) samtakanna næstu 4 árin og fannst tilvalið að sækja um lén fyrir þau samtök sem heita NSR. Ég er búinn að athuga það að laus eru lén nsr.xxx þar sem xxx er þriggja stafa erlend ending. Ekkert mál að fá það en mig langaði til að vera þjóðlegur og fá nsr.is til þess að tengja þetta við Ísland og auglýsa hverjir það væru sem færu með þetta mikilvæga samstarf næstu árin. Þar sem ritari NSR er jafnframt gjaldkeri fannst mér eðlilegast að ég væri gerður ábyrgur fyrir greiðslum og þar með léninu og sótti um nsr.is. Semsagt ég sótti um tvö lén í eigin nafni en fyrir hönd hópa sem ég er í (annar er víst útlenskur að 4/5 má hann fá lén?). Í báðum tilvikum hef ég prókúru og má skuldbinda báða aðila fjárhagslega. Svar Intís sendi ég ykkur hér með og ítreka með því enn og aftur fáranleikann í reglunum. Það er þó huggun harmi gegn að ég get fengið annað lénanna. Kannski ég ætti að láta konuna mína leppa hitt???? Hvað finnst ykkur? Með bestu kveðju Halldór Kristjánsson, framkvæmdastjóri ------------------------------------------------------------------ Ráðgjafi í upplýsingatækni, (Information Technology Consultant) Tölvu- og verkfræðiþjónustan, Grensásvegi 16, 108 Reykjavík Ísland / Iceland Sími / Tel: (354) 520 9000; Fax: (354) 520 9009 Netfang / E-mail: halldor@tv.is; Heimasíða/URL: www.tv.is ------------------------------------------------------------------ "Ágæti viðskiptavinur. Varðandi umsókn um lénin mr72.is. og nsr.is Vinsamlegast kynnið ykkur úthlutunarreglur sjá: http://www.isnet.is/is/dom-skraning.html 1.3 Aðferðir við skráningu Hver umsækjandi fær að jafnaði einungis úthlutað einu léni í sínu nafni. Umsækjanda er þó heimilt að skrá aukalén. Hægt er að skrá lén með þrennum hætti. a. Sem skráð vörumerki í vörumerkjaskrá Einkaleyfastofu enda uppfylli það að öðru leyti skilyrði skráningar. Með tilvísun í skráð vörumerki er hér átt við að aðili sem skráir "NAFN" í vörumerkjaskrá getur sótt um aukalén "NAFN.is". b. Sem stílfært eða skammstafað nafn umsækjanda hafi umsækjandi þegar skráð i lén sem er fullt nafn umsækjanda skv. skráningu í þjóðskrá. c. Sem fullt nafn umsækjanda hafi umsækjandi þegar skráð lén sem er stytting eða stílfæring á fullu nafni umsækjanda skv. skráningu í þjóðskrá. Fjöldi léna sem sótt er um á grunni vörumerkja er ekki takmarkaður. Aðeins er úthlutað einu léni til hvers umsækjanda er vísar til nafns umsækjanda, sbr. b og c að ofan. Með umsókn um lén skal fylgja staðfesting á skráningu nafns frá Einkaleyfastofu eða þjóðskrá. Einungis er hægt að sækja um eitt lén sbr. lið b og c og því geturðu aðeins fengið annaðhvort mr72.is eða nrs.is Hitt verður þá að vera skráð vörumerki sbr. lið a. ***Vinsamlega athugið að ef ekki er búið að ganga frá uppsetningu og/eða senda inn viðeigandi gögn/upplýsingar innan tíu daga, fellur umsóknin úr gildi og er endursend til umsækjanda. ***Við þetta verður lénið laust til umsóknar á ný.*** -- Kveðja, Lilja Margrét/úthlutun léna lilja@isnet.is INTIS/ISnet Home Page http://www.isnet.is Taeknigardi Phone +354 525 4589 Dunhaga 5 Fax +354 561 0999 IS-107 Reykjavik Iceland"