Sælir, Það er mitt álit, að krafan um postmaster@<lén> sé enn þá réttmæt. Það gerist stundum að aðrar leiðir eru ekki aðgengilegar, t.d. netföng í whois eða þau sem finnast á netinu virka alls ekki. Hef tekið eftir því að mörg fyrirtæki skilgreina oft í whois sérstakan starfsmann sem á að sjá um tengd mál en þau munu ekkert virka ef að starfsmaðurinn vinnur ekki lengur fyrir fyrirtækið. Segjum t.d. að starfsmaðurinn A Jónsson vinni hjá fyrirtækinu Banani hf (enga hugmynd hvort að fyrirtækið sé til eða ekki) sem á banani.is og þeir skrá í whois að ajonsson@banani.is sjái um þetta. Síðan gerist að A Jónsson hættir hjá fyrirtækinu en þeir gleyma að breyta þessu. Þeir sem þurfa að hafa samband og nota netfangið sem þeir fengu frá whois upplýsingunum, fá engin villuskilaboð þar sem netfangið er enn þá virkt en A Jónsson er hættur að kíkja á það. Sá sem sendir póstinn veit ekkert hvort að einhver las póstinn og nýr umsjónarmaður kerfissins hjá Banani hf. mun ekkert vita hvað var sent. Þetta myndi ekki gerast ef að A Jónsson hefði látið birta postmaster@banani.is í upphafi. Álit mitt er því að postmaster@<lén> er því miklu fýsilegra en "custom" netföng en þó er í lagi að blanda þessu saman og láta t.d. postmaster forwardast á þá sem sjá um póstinn. Auk þess er alltaf gott að hafa eitt netfang sem maður veit að virkar í staðinn fyrir að þurfa að fletta því sífellt upp. Bara til að bæta við umræðuna, þá finnst mér að fyrirtæki eigi ekkert að setja netföng starfsmanna beint í whois eða aðrar samskiptaleiðir, heldur láta föstu netföngin forwarda póstinum á viðkomandi starfsmann eða láta alltaf viðkomandi starfsmann fá lykilorðið fyrir póstboxið (sem að er alltaf breytt eftir að starfsmaður sem hefur aðgang að því hættir hjá fyrirtækinu). Starfsmenn myndu samt sem áður hafa sér netföng ef fólki langar að hafa samband við þá beint án afskipta vinnufélaganna. Hægt væri að forðast að þurfa að setja MX færslu fyrir lén, ef það væri hægt að skilgreina í DNS færslu hver sér um jafngildi postmaster fyrir lénið ef netfangið er undir öðru léni. Sú aðferð myndi samt krefjast breytinga á núverandi staðli svo best ég veit, en ég efast um að þeir taki þetta inn bara sí svona. Með kveðju, Svavar Lúthersson (svavarl@stuff.is) ----- Original Message ----- From: "Guðbjörn S. Hreinsson" <gsh@centrum.is> To: <domain@isnic.is> Sent: Sunday, February 27, 2005 4:34 PM Subject: [Domain] postmaster kröfur vegna léna undir .is Sæl, Langaði að athuga viðbrögð og fá fram umræðu um það hvort menn telji að sú krafa um að lén undir .is þurfi að taka á móti póst fyrir postmaster sé enn réttmæt? Í dag geta menn verið að skrá lén í allt öðrum tilgangi heldur en að taka á móti pósti á því léni, hvað þá postmaster frekar en öðrum netföngum. Í dag eru menn almennt (?) að leita uppi tengiliði eftir öðrum leiðum heldur en að senda póst blint á postmaster@<lén>, hægt er að notast við tengiliði sem eru skráðir í whois fyrir lénið, vegna ip talna póstþjóna eða á öðrum listum/vefum á netinu. Mér finnst það frekar dapurt að þurfa að skilgreina MX færslur fyrir lén og síðan hafna öllum pósti sem kemur inn nema það sem kemur á postmaster. Það væri líka mun skilvirkara að setja inn SPF færslur sem tilgreina að það eigi enginn póstur að koma frá þessi léni (ég ætla ekki að vekja upp umræður um spf, csv eða annað marid tengt). Eitthvað sem mælir á móti því að sleppa þessarri kröfu í dag? mbk, -GSH _______________________________________________ Domain mailing list Domain@lists.isnic.is http://lists.isnic.is/mailman/listinfo/domain