Sælir, Þann 05. september 2000, ritaði Bjarki M. Karlsson eitthvað á þessa leið:
Ég tek heilshugar undir með Baldri.
Í hvert sinn sem reynt er að leysa vandamál með því að setja ítarlegri reglur skapst ný og fleiri vandamál. Núverandi úthlutunarreglur Intís eru settar af góðum hug en eru í framkvæmd búrókratískar og menn gera grín að þeim. Framkomnar breytingartillögur eru síst betri en núgildandi reglur.
Auðvitað eiga engar hömlur að vera á úthlutun aðrar en vörumerkjaréttur. Hindrun á milliríkjaviðskipum, s.s. að banna útlendingum að fá .is lén eru alvarleg tímaskekkja. Einangrunarstefna í viðskiptum og menningu hefur aldrei verið Íslendingum til góðs.
Ég spyr þig sömu spurningar og ég spurði Baldur, hvernig væri best staðið að því að vernda vörumerkjarétt?
Beggja vegna Atlantshafsins hafa eigendur vörumerkja verið að vinna mál gegn sk. domain-takers. Það er engin ástæða til að ætla annað en að sama gerist hér. Stórlega má draga í efa að starfsfólk Intís eða úthlutunarnefnd á vegum fyrirtækisins sé hæfasti aðilinn til að skera úr um deilumál á sviði vörumerkjaréttar. Eðlilegra er að vörumerkjaeigendur, sem á sér telja brotið, leiti réttar síns fyrir dómstólum, rétt eins og þeir gera þegar réttur þeirra er brotinn utan Internetsins.
Hingað til hafa fyrirtæki ekki þorað að leita réttar síns fyrir dómstólum hér heima vegna óskýrra laga á þessum vetvangi.
Annað mál tel ég rétt að komist í umræðuna:
Eftir að hafa komist í meirihlutaeigu Íslandssíma er Intís í mjög vondri aðstöðu sem 1) úthlutunaraðili léna 2) löggjafi í gerð úthlutunarreglna
Löggjafi? Við setjum ekki reglurnar einir, þær eru settar á grundvelli umræðna eins og eru hér í gangi.
3) beinn keppinautur umsækjenda léna.
Myndirðu útskýra fyrir mér hvað þetta þýðir, hvernig erum við beinn keppinautur umsækjenda léna?
Enginn annar en Intís má úthluta .is lénum. Hvernig fyndist mönnum ef fyrirtæki á markaði réði vörumerkja- og einkaleyfaskrá, setti sér sjálft reglur og væri sjálft (eða móðurfyrirtæki þess) að skrá vörumerki og einkaleyfi sem keppinautur á markaði? Slíkt þætti vafalaust fráleitt en dæmið er fullkomlega sambærilegt.
Ég er ekki að saka Intís um að misnota aðstöðu sína, bendi aðeins á að fyrirtækið er í aðstöðu til þess og að slíkt er alltaf óheppilegt hversu ráðvandir menn sem í hlut eiga. Ég veit að Íslandssímamenn skilja þetta í ljósi þeirra eigin gagnrýni á vinnubrögð Landssíma Íslands. Það er hætt við að með flóknum úthlutunarreglum muni gremja yfir þessari valdastöu Íslandssíma/Intís fara vaxandi og kröfur um að ríkisvaldið hlutist til um úthlutun léna verða háværar. Ég held að ríkisafskipi væru síst til bóta og hvet því Intís til að íhuga alvarlega tillögu Baldurs.
Með kveðju
Bjarki Már Karlsson bjarki@islensk.is Forstöðumaður Internetþjónustu Íslenskrar upplýsingatækni www.islensk.is S: 430 2200 F: 899 2298
-----Original Message-----
Klipp, klipp, klipp <<<
-- Ólafur Osvaldsson Kerfisstjóri Internet á Íslandi hf. Sími: 525-5291 Email: oli@isnet.is