Á næstunni munu verðar gerðar töluverðar breytingar á isgate.is, vélin verður stækkuð og allar þjónustur uppfærðar. Í framhaldi af þessu þá mun ISNIC loka fyrir recursive uppflettingar um þessa vél og er það gert af öryggisástæðum. Þetta þýðir að allri sem eru með isgate.is, 193.4.58.51 eða 130.208.165.63 sem resolver á vélinni sinni, eða forwarder í nafnaþjóni munu ekki framkvæma uppfletingar rétt nema þessu sé breytt. Ekki er komin dagsetning á þetta en það verður fljótlega eftir mánaðarmót ef allt gengur eftir svo ég mæli með að þið framkvæmið þessar breytingar á uppsetningu véla án tafar ef þess er þörf því við tökum enga ábyrgð á truflun í rekstri tölvukerfa sem geta orðið vegna þessa. Ólafur Osvaldsson Kerfisstjóri Internet á Íslandi hf. Sími: 525-5291 Email: oli@isnic.is