Sælir og takk fyrir þátttökuna í umræðum um breytingar hjá ISNIC. Eins og menn vita urðu breytingar á stjórn og eignarhaldi Internets á Íslandi hf. sl. vor. Nýja stjórnin stendur nær fyrirtækinu en sú gamla og þess sjást nú merki. Hún ákvað á fyrsta fundi sínum að án tafar skyldi hefjast handa við innleiðingu á löngu tímabærum breytingum til einföldunar á skráningarferli lénsins .is og þar með bættri þjónustu hjá ISNIC. Breytingum sem starfsmenn og viðskiptamenn höfðu lengi mælst til að gerðar yrðu. Í raun var þetta aðalástæðan fyrir kaupunum á fyrirtækinu. Fyrsta skrefið af mörgum hefur nú verið stigið með upptöku á "Biðsvæði fyrir lén". Biðsvæðið er að mestu án takmarkana og engin tímamörk eru gefin upp um hversu lengi má geyma lén á biðsvæði. Reynslan verður látin ráða í þeim efnum. Um klukkustund eftir að biðsvæðið var virkjað á isnic.is hafði fyrsta léninu verið "parkerað" þar. Svo skemmtilega vill til að ID-númer lénsins er 20.000. Sjálfur var ég fyrstur til að prófa (þökk sé strákunum) og parkeraði léninu jensen.is en Guð má vita hvenær ég gef mér tíma til að setja upp eigin vef. Að biðsvæðinu vann Hafsteinn Baldvinsson forritari og Maríus Ólafsson netstjóri sá um DNS hlutann - að sjálfsögðu. Ólafur Ósvaldsson kerfissjóri hafði umsjón með breytingum og sá um prófanir. Viðskiptamenn eru beðnir að láta vita ef þeir verða varir við villur. Engin breyting var gerð að þessu sinni á öðrum þáttum lénaskráningarinnar en það styttist í fleiri nýjungar fyrir almenna notendur og einnig fyrir umboðsmenn. Kveðja, Jens Pétur Jensen framkvæmdastjóri Internet á Íslandi hf. isnic.is - modernus.is - rix.is