On 2000-09-05, 16:20:53 (-0000), Baldur Kristjánsson wrote:
Af hverju ættu útlendingar EKKI að fá að skrá .is domain? Ég sé engin haldbær rök fyrir því.
Mér persónulega finnst gott að einhver merking sé bak við ".is" - eðlilegasta merkingin er auðvitað að viðkomandi lén hafi eitthvað með Ísland að gera. Auðvitað eiga útlendingar að fá að skrá .is nöfn... ef þeir eru að nota það í eitthvað sem tengist Íslandi. En annars ekki, annars er verið að veikja merkingu ".is", sem mér fyndist slæmt. Mér sýnist það vera hugmyndin bak við tillögurnar sem Óli kynnti fyrir okkur, og er fylgjandi henni. Auðvitað má alltaf finna vankanta á útfærslu hennar, en hugmyndin er samt góð. Annars finnst mér reyndar annað mun verra í þessum tillögum - ef ég er að skilja það rétt, þá er bannað að skrá web.is eða com.is. Þetta minnir mig einna helst á gömul atkvæði í skilmálum ISnet (löngu afnumin) um að það væri bannað að úthluta mönnum subdomain. Vel meint, en samt slæm hugmynd. Ég hef nefnilega lengið verið að bíða eftir að einhver stofnaði t.d. "ehf.is", sem hefði ekkert annað hlutverk en að selja fyrirtækjum nöfnin sín á forminu "fyrirtaeki.ehf.is", gegn því að framvísuð yrðu sönnun þess efnis að þetta sé raunverulega "ehf" fyrirtæki. Ef menn vilja nota ".com.is" eða ".co.is" fyrir eitthvað í þessum dúr (t.d. af því að það er vel þekkt og skilst af útlendingum) þá finnst mér það bara hið besta mál. Mér fannst .com, .net, .edu, .org og svo framvegis skiptingin í Bandaríkjunum góð hugmynd. Verst það er búið að eyðileggja hana! Þetta er annars eitthvað sem IntÍs ættu að íhuga sjálfir - búa til nokkur annarssstigs nöfn og hafa mismunandi úthlutunarskilmála fyrir hvert, og jafnvel eitt þar sem skráning væri algjörlega sjálfvirk og ókeypis. Mér þætti það mjög góð þjónusta fyrir áhugamenn og nískupúka landsins. Áfram með umræðurnar. :) -- Bjarni R. Einarsson PGP: 02764305, B7A3AB89 bre@netverjar.is -><- http://bre.klaki.net/ Netverjar gegn ruslpósti: http://www.netverjar.is/baratta/ruslpostur/