Sælir Ég er sammála halldóri og fagna umræður um breytingu á úthlutunarreglur intís. Mig langar að vekja athygli á grein 1.3. Það er mjög gott mál og ég styð skref í rétta átt að leyfa aukinn fjölda léna á hverja kennitölu. Hinsvegar langar mig að spyrja ykkur hver rökin eru að hafa takmörkun á fjölda léna sem má skrá? Ég sé tvennt í þessu. 1. Að vera með sérstaka úthlutunarnefnd á vegum intís er aukin kostnaður fyrir fyrirtækið og seinkar ferlið í uthlutun á lénum. 2. Ef sami aðili er með mörg lén skráð á sig minnkar pappírsferlið, flækjustigið o.þ.a.l kostnaður fyrir intís. Ef það er á annaðborð að leyfa að hafa 5 lén byggt á forsendum reglu 1.3, hversvegna ekki gefa fjöldan frjálsan? Hér er mín tillaga og er hún þegar í skoðun í danmörku. 1. Úthlutun lén verður gefinn frjáls að öllu leyti - íslendum sem og útlendingum*. 2. Aðrir skilmálar úthlutunarreglur intís eru að öðru leyti óbreytt. 3. Stofnaður verður gerðadómur sem sér um deilumál um lén sem handhafi vörumerkis telur sig eiga rétt á. Til þessarar gerðardóms getur fólk leitað réttar síns á einfaldan og fljótlegan hátt. *í kjölfarið verður skráning á lénum gerð rafræn yfir netið. Kostir: Aukin notkun á internetinu, ýtir undir vöxt nýrra fyrirtækja, hvetjandi fyrir íslenskt hagkerfi. Einfaldara verður að skrá lén o.s.frv. Fyrir intís: Minni rekstrarkostnaður, stóraukin sala, hagræðing í rekstri. Ókostir: Handhafar vörumerkis geta lent í vandræðum með að vernda vörumerki sín, þ.e. lén sem vísa á vörumerki þeirra geta verið tekin, oft í von um skjótan gróða. Þurfa þau í kjölfarið að leita leiða til að fá þau aftur ef þau telja sig eiga rétt á þeim - sbr lénagerðadómur. Fjársterkir aðilar gætu keypt upp stóran hlut íslenskra léna og setið á þeim til endursölu, en það er harla ólíklegt miðað við það sem þarf að borga fyrir léníð og stærðar landsins. Ef á heildina er litið hver er þá að njóta góðs af höftun á útbreiðslu léna? Það eru fyrirtæki sem eiga vörumerki og eru jafnvel ekki að kaupa sér lén. Hver verður fyrir óþægindum og á hvern lendir kostnaðurinn á? Intís og íslenskt þjóðfélag, sem bæði borga meira fyrir lénin (verðin eru þó sanngjörn en lækka líklega með meiri fjölda) og njóta ekki góðs af örari þróun internetsins á íslandi. Með von um umræður og gagnrýni, Leifur Alexander Haraldsson ----- Original Message ----- From: Olafur Osvaldsson <oli@isnet.is> To: <domain@lists.isnet.is> Cc: <intis@isnet.is> Sent: Tuesday, September 05, 2000 12:33 PM Subject: Tillaga að breytingum úthlutunarreglna .is
Mér hefur borist eftirfarandi tillaga um breytingar á úthlutunarreglum léna undir .is Vinsamlega sendið allar athugasemdir, tillögur, eigin hugmyndir að breytingum eða höfnun breytinga á .
1.1 Umsækjandi Léni er aðeins úthlutað til einstaklinga með íslenskt ríkisfang, félaga, stofnana og fyrirtækja með starfsemi hér á landi. Til fyrirtækja teljast einstaklingar með rekstur. Umsækjandi skal vera löglega skráður í fyrirtækjaskrá eða þjóðskrá hjá Hagstofu Íslands með eigin kennitölu og nafn. Umsækjandi sem fær úthlutað léni er handhafi viðkomandi léns. Úthlutun felur ekki í sér eignarrétt.
1.2 Lén Lén má einungis innihalda stafi úr enska stafrófinu, tölustafi og bandstrik (-), það þarf að vera a.m.k tveir stafir, má ekki byrja eða enda á bandstriki, ekki vera lengra en 63 stafir fyrir utan .is endingu og má ekki vera einungis tölustafir.
Sá sem óskar að skrá lén eða aukalén sem vísar til vörumerkis sem viðkomandi er sjálfur ekki rétthafi að, en er skráð á Íslandi í nafni annars, þarf að sýna fram á að hann hafi heimild rétthafans til slíkrar notkunar vörumerkisins, slík heimild getur komið sem undirritað umboð frá rétthafa.
1.3 Aðferðir við skráningu Hver umsækjandi getur fengið skráð 5 lén á sína kennitölu.
Hægt er að skrá þessi 5 lén með þrennum hætti.
a. Sem fullt nafn umsækjanda.
b. Sem stílfært eða skammstafað nafn umsækjanda.
c. Byggt á greinargerð sem þarf að vera lýsandi og útskýra hvers vegna umsækjandi ætti að fá þetta lén fram yfir aðra. Ef þessi leið er valin þá er greinargerðin lögð fyrir í úthlutunardeild INTÍS sem ákveður hvort greinargerð sé fullnægjandi eða ekki.
Umsækjandi getur þó skráð aukalén umfram fyrstu 5, en öll lén umfram 5 verða að vera byggð á orðmerki sem skráð er í vörumerkjaskrá Einkaleyfastofu enda uppfylli það að öðru leyti skilyrði skráningar. Með tilvísun í skráð vörumerki er hér átt við að aðili sem á skráð "MERKI" í vörumerkjaskrá getur sótt um lénið "MERKI.is". Ef ská á lén byggt á vörumerki þá þarf vörumerkið að hlýta þessum skilyrðum: Vörumerki, ..þarf að vera þegar skráð, þ.e. umsókn um skráningu vörumerkis er ekki tekin gild. ..þarf að vera orðmerki, þ.e. myndmerki er ekki tekið gilt.
INTIS áskilur sér rétt til að krefjast viðeigandi gagna um að skilyrði skráningar séu uppfyllt.
1.4 Skráður handhafi og ábyrgð Aðeins er skráður einn handhafi hvers léns. Skráður handhafi ber í öllum tilfellum ábyrgð á greiðslu skráningargjalda.
1.5 Framsal léns Óheimilt er að framselja lén til þriðja aðila.
1.6 Úthlutun Léni er aðeins úthlutað til þeirra sem eru tengdir Internetinu. Ekki er unnt að taka frá lén. Endanleg úthlutun fer fram um leið og tenging kemst á, þ.e. þegar upplýsingar um nafn eru skráðar í nafnakerfi Netsins. Hafi uppsetning léns á viðkomandi nafnaþjónum ekki verið framkvæmd innan 10 daga frá því að umsókn berst til INTIS fellur viðkomandi umsókn úr gildi.
Léni er úthlutað ef rétt útfyllt umsókn hefur borist til INTIS og skilyrðum úthlutunarreglna fullnægt. Uppfylli umsókn ekki reglur um úthlutun er hún endursend til umsækjanda með skýringum. Umsækjandi þarf að sækja um lén að nýju í slíku tilfelli.
1.7 Skuldbinding umsækjanda Umsókn um lén skal vera undirrituð af umsækjanda eða umboðsmanni, sem til þess er bær að skuldbinda umsækjandann.
1.8 Almenn ákvæði INTIS áskilur sér rétt til að hafna umsókn um lén falli það ekki að hefðum og almennum reglum á Internetinu. Hér er átt við nöfn sem gætu valdið misskilningi hjá notendum varðandi hlutverk fyrirtækis umsækjanda samanber eftirtalin dæmi:
Almennir TLD (Top Level Domain): net.is com.is edu.is gov.is org.is og int.is Almennir gTLD (generic Top Level Domain), skv. núverandi tillögu: web.is, shop.is, firm.is, nom.is, arts.is og rec.is Nöfn þekktrar netþjónustu: usenet.is, ftp.is, www.is, who.is, telnet.is, irc.is, og mail.is Eiginnöfn: internet.is, island.is o.s.frv. Nöfn sem valdið geta tæknilegum vandkvæðum af ýmsum toga, svo sem eins-stafs nöfn, og nöfn sem einungis innihalda tölustafi.
Umsækjandi er eindregið hvattur til að athuga hvort umbeðið nafn er þegar skráð af öðrum aðila hjá Einkaleyfastofu til að firra sig hættu á að upp komi deilur þegar/ef eigandi nafns tengist. INTIS getur, að undangengnum dómsúrskurði, þurft að umskrá umdeilt lén. Öll gögn, sem umsækjandi framvísar með umsókn á léni, eru á ábyrgð umsækjanda.
Vegna þeirra fjárhagslegu skuldbindinga sem fylgja skráningu léns verður umsækjandi (ef einstaklingur) og stjórnunarlegur tengiliður að vera að minnsta kosti 18 ára.
1.9 Ábyrgð INTIS INTIS undanþiggur sig fébótaábyrgð á hugsanlegu tjóni sem rakið kann að verða til dráttar á afgreiðslu umsóknar um tiltekið lén eða höfnunar á skráningu tiltekins léns.
Umsækjandi er eindregið hvattur til að athuga hvort umbeðið nafn er þegar skráð af öðrum aðila hjá Einkaleyfastofu til að firra sig hættu á að upp komi deilur þegar/ef eigandi nafns tengist. INTIS athugar ekki sjálfstætt skráningu hjá Einkaleyfastofu vegna umsókna um lén sem tengd eru vörumerkjum. INTIS getur, að undangengnum dómsúrskurði, þurft að umskrá umdeilt lén. INTIS undanþiggur sig fébótaábyrgð á hugsanlegu tjóni vegna þess.
Öll gögn, sem umsækjandi framvísar með umsókn á léni, eru á ábyrgð umsækjanda.
Ýmiss atriði:
2.0 Færsla léna Ákveði handhafi léns að breyta vistun léns ber honum að senda upplýsingar til INTIS þar sem fram kemur nýr vistunarstaður ásamt öðrum breytingum sem kunna að vera s.s. greiðanda. Beiðni um færslu skal senda í tölvupósti, faxi, eða hefðbundnum pósti.
2.1 Uppsögn á léni Ákveði handhafi léns að fella niður notkun á léni til frambúðar ber honum að senda uppsögn til INTIS. Uppsögn skal senda í tölvupósti, faxi, eða hefðbundnum pósti. Lén er þá afskráð og laust til umsóknar að nýju.
2.2 Breyting á léni - umskráning Vilji handhafi skráðs léns breyta nafni þess er unnt að sækja um nýtt lén sem kemur í stað eldra léns. Nýtt lén lýtur sömu skilmálum um úthlutun. Við umsókn skal tilgreina eldra lén og tiltaka að um umskráningu sé að ræða. Eldra lén er virkt að hluta í 12 mánuði en eftir þann tíma er það laust til umsóknar að nýju
2.3 Lén afmáð Sé léni ekki haldið við tæknilega, þ.e. nafnaþjónar þess ekki lengur tengdir, lén vantar í skilgreinda nafnaþjóna eða lén rangt sett upp í tilgreindum nafnaþjónum, eða skráningargjöld ekki greidd er send viðvörun til stjórnunarlegs tengiliðs lénsins. Sé viðvörun ekki sinnt á viðunandi máta innan 30 daga frá sendingu viðvörunar er lénið afmáð. Viðvörun er send í tölvupósti og ábyrgðarpósti.
2.4 Gjöld Stofngjald er greitt fyrir nýskráningu og síðan árgjald samkvæmt gjaldskrá á hverjum tíma. Ekki er gjaldfært fyrir færslu á lénum. Umskráning á léni hefur í för með sér nýskráningu
Ólafur Osvaldsson Kerfisstjóri Internet á Íslandi hf. Sími: 525-5291 Email: oli@isnet.is