t.d. með, eins og þú nefnir sem dæmi, cocacola.is, þá finnst mér t.d. herra jón jónsson, sem er kókaðdáandi, alveg hafa jafnmikinn rétt á að hafa heimasíðu sína um kók á léninu cocacola.is og vífilfell, hf. auk þess eru dæmin ekki alltaf jafnskýr og þetta. dæmi (algerlega ímyndað, en þú skilur hvað ég meina) -- vífilfell skráir lénið kok.is. en segjum svo að maður er heitir Karl Orri Karlsson, og rekur samnefnda búð, gerir tilkall til nafnsins? og vífilfell búið að spandera stórum fjárhæðum í auglýsingar fyrir nýja lénið sitt, sem allavega að mínu mati þeir ættu alveg jafnmikið tilkall til. At 12:22 PM 11/27/00 +0000, you wrote:
Ég verð að vera ósammála ykkur í þessu, þar sem sá sem skrásetur vörumerki, t.a.m. Íslensk upplýsingatækni, er auðvitað að því til að vernda notkunarrétt sinn á nafninu. Hann gerir það til þess að enginn annar auglýsi vöru eða vinnu undir nafninu Íslensk upplýsingatækni á opinberum vettvangi, og mér þykir það sama eiga að gilda um lénaskráningar - lén eru, eins og allir vita, gríðarlegur auglýsingamáttur og fyrirtækjum mikilvæg.
Frá sjónarhóli þeirra sem eiga skrásett vörumerki er hrein og bein firra að einhver skuli skrá lén (í þessu tilfelli islenskupplysingataekni.is) og ætla sér að nota það til kynningar á vöru eða þjónustu. Skráning vörumerkja ætti í raun og veru að ná yfir skráningu léna, en um það er ekki enn getið í lögum sem fjalla um eignarrétt á skráðum vörumerkjum. Til þess að stemma stigu við þessu finnst mér að t.a.m. mætti hafa þá reglu í heiðri að skriflegt leyfi eiganda vörumerkis yrði að liggja fyrir, skyldi aðili annar en eigandi vörumerkis sækja um lén sem ber augljósa skírskotun í skráð vörumerki.
Að ég skuli skrá lénið cocacola.is er að sjálfsögðu ekki eðlileg framkvæmd, þar sem ég er að nýta mér þekkt vörumerki og áhrifamátt lénsins til eigin framdráttar. Ég endurtek því að mér finnst eðlilegt að sett verði sú regla að skyldi einhver ætla að skrá lén sem ber skírskotun í skráð vörumerki annars aðila, skuli skriflegt samþykki eiganda vörumerkisins liggja fyrir, ellegar verði umsókninni hafnað.
kveðja, Erling Ormar
// erling.ormar.vignisson // íslensk.upplýsingatækni // erling@islensk.is <mailto:erling@islensk.is> // 899 7418 && 430 2208
-----Original Message----- From: owner-domain@lists.isnet.is [mailto:owner-domain@lists.isnet.is]On Behalf Of Andmann Sent: 27. nóvember 2000 12:08 To: domain@lists.isnet.is Subject: Re: Drög að nýjum reglum um skráningu og úthlutu n léna
Ég er sammála Leifi í þessu.... lénaskráningar eiga alls ekki að tengjast vörumerkjum eða öðru slíku að mínu mati, og ætti þess vegna alls ekki að vera svoleiðis að það sé hægt að kæra fyrirtæki fyrir að skrá lén sem er þá jafnvel kannski alls ekki ætlað til þess, heldur túlkaði vörumerkiseigandinn það bara svoleiðis. Þetta er hættulegt svæði, og finnst mér að það ætti að taka þessa reglu út með öllu.
Mér líst mjög vel á þessar breytingar og tel ég þær vera til framfara. Hinsvegar: ii) lén hafi verið skráð í þeim eina tilgangi að hindra samkeppnisaðila í að skrá sama lén.
mér finnst ekkert athugavert að í samkeppnismarkaði séu þeir verðlaunaðir sem eru fyrri til í að skrá lén á sínu sviði og ætti ekki að passa uppá þá sem seinir eru til með því að hafa opnun á rök sem þessum. Ég sé ekki tilgang þessara reglu. Gæti einhver útskýrt hana?
Kv. Leifur A. Haraldsson.
----- Original Message ----- From: "Helgi Jonsson" <hjons@isnet.is> To: <domain@lists.isnet.is> Cc: <isnic-s@isnic.is>; <isnic@isnic.is> Sent: Thursday, November 23, 2000 1:02 PM Subject: Drög að nýjum reglum um skráningu og úthlutun léna
Ágætu netverjar,
um leið og ég sendi ykkur slóð á drög að nýjum reglum um úthlutun léna undir .is langar mig að fylgja drögum úr hlaði með nokkrum orðum.
Við samningu nýrra reglna hefur stjórn ISNIC m.a. litið til þess að um er að ræða þjóðarlén og því ætlað til notkunar af íslendingum umfram aðra. Stjórnin hefur þá haft til hliðsjónar ábendingar sem fram hafa komið á póstlista domain@lists.isnet.is
Meðfylgjandi drög voru samþykkt efnislega af stjórn ISNIC 20. nóvember s.l.; þau hafa verið yfirfarin og lagfærð hvað orðalag snertir síðan. Stefnt er að nýjar reglur taki gildi 1. desember n.k.
Vandasamt er að semja reglur þannig að ekki sé unnt að túlka þær á fleiri en einn máta. Þetta er þó væntanlega veganesti sem reglusmiðir fara af stað með. Það er von stjórnar ISNIC að meðfylgjandi drög séu skýr og túlkunaratriði sem fæst. Með birtingu draga nú fylgir sú ósk að netverjar gaumgæfi texta og sendi athugasemdir á póstlistann ef tilefni þykir til.
Nýjar reglum eru í mörgu frábrugðnar reglum sem í gildi eru nú. Of langt mál væri að koma að öllum breytingum en þær helstu eru þessar:
a) skilgreiningar fylgja nú reglum. Vert er að benda sérstaklega skilgreiningu á "rétthafa" og "stjórnunarlegum tengilið"
b) í kafla um umsókn um lén er greint á milli íslenskra umsækjenda og erlendra. Eins og sjá má er erlendum umsækjendum þrengri skorður settar en innlendum umsækjendum enda um þjóðarlén að ræða.
c) reglur um ferli varðandi úthlutun léna eru í megindráttum óbreyttar frá þeim sem nú gilda utan þess að rétthafa er nú skylt að hlýta úrskurði sérstakrar úrskurðarnefndar léna í kærumálum.
d) í kafla um tæknilega uppsetning léna er að finna nýtt skilyrði er varðar skráningu nafnaþjóna.
e) í köflum um breytingu á vistun léna og umskráningu er sérstaklega bent á að beiðni um slíkar breytingar verða að koma frá stjórnunarlegum tengilið léns. Rétthafi getur ekki farið fram á þessar breytingar beint til ISNIC.
f) í kafla um greiðslur léngjalda er nýmæli að greiða þarf gjöld fyrirfram.
g) í kafla um brottfall léna er sérstaklega bent á að lén er afmáð í framhaldi af greiðslufalli árgjalda.
h) kaflar 9-11 fjalla um úrskurðarnefnd léna. Úrskurðarnefnd er nýmæli. Við reglusmíð hefur verið stuðst við sambærilegar erlendar reglur en reynt að gæta þess að valdsvið nefndarinnar sé ekki ótakmarkað.
i) ábyrgð ISNIC er tíunduð í 12. kafla.
j) tvö bráðabirgðaákvæði eru tiltekin. Það fyrra þarfnast ekki skýringa. Hið síðara er ætlað bæði ISNIC og viðskiptavinum enda eðlilegt að í einhverjum tilfellum þurfi aðlögunartíma að breyttum greiðslumáta.
Hér hefur aðeins verið tæpt á helstu atriðum er varða breytingar frá núverandi reglum um skráningu og úthlutun léna. Regluverkið allt þarf að skoða í samhengi til að fá heildarmynd af nýju umhverfi sem reglurnar skapa.
Sjá drög að nýjum reglum: http://www.isnic.is/is/reglur.html
Kveðja, Helgi
-- Helgi Jonsson, Director hjons@isnic.is
Internet Iceland - ISNiC Taeknigardur phone +354-525-4950 Dunhagi 5 fax +354-561-0999 IS-107 Reykjavik Iceland homepage www.isnic.is
--- David S. Geirsson Linux system administrator and PHP programmer tux@islandia.is (354)-5576791
--- David S. Geirsson Linux system administrator and PHP programmer tux@islandia.is (354)-5576791