Vegna fjölda áskorana gegnum árin hefur ISNIC nú ákveðið að leyfa endurnýjun
á skráningu .is léna til nokkurra ára í senn. Fyrst um sinn verður fyrsta
skráning léns ávallt til eins árs. Þegar fyrsta árinu lýkur getur rétthafi
valið að framlengja um eitt til fimm ár.
Til samræmis við þetta leggum við til að 19.gr skráningarreglna ISNIC verð
breytt þannig að hún hljóði svo
"Afnot af léni miðast að meginreglu við a.m.k eitt ár í senn. Eindagi árgjalds
er afmælisdagur léns. Skráningu léns skal fylgja greiðsla."
--
Marius Olafsson
ISNIC ltd. http://www.isnic.is
Katrinartun 2
Reykjavik ICELAND marius(a)isnic.is