Stjórn ISNIC samþykkti fyrir skömmu á opnum stjórnarfundi með
starfsmönnum, að aflétta skilyrði um innlendan tengilið rétthafa fyrir
sitt leyti.
Um formbreytingu yrði að ræða á reglum ISNIC þar sem skilyrði um
innlendan tengilið er afnumið í þeim tilfellum þar sem skráning fer
fram í gegnum erlendan umboðsmann.
Skilyrði um innlendan tengilið er því áfram í gildi ef um beina
skráningu erlendra aðila er að ræða og jafnframt ef þeir skrá sig í
gegnum innlendan umboðsaðila, þá er umboðsaðilinn eftir sem áður
innlendi tengiliðurinn.
Þessi nýja samþykkt er sem sagt opnun á farvegi fyrir erlend fyrirtæki
og einstaklinga til að versla .is lén gegnum erlendan umboðsmann sem
ISNIC væri fyrirfram búið að samþykkja og gera samning við.
Regla 2.3.1 breytist skv. ofangreindu úr "Erlendur umsækjandi
tilgreinir íslenskan umboðsmann sem tengilið rétthafa léns í skráningu
sinni." í: "Erlendur umsækjandi skal tilgreina íslenskan, eða skráðan
umboðsmann sem tengilið rétthafa léns."
ISNIC er umhugað um að varðveita mikið traust og trúverðugleika .is
rótarlénsins. Í þeim efnum skiptir áreiðanleiki Wohis grunnsins
höfuðmáli.
Samfara breytingunni mun ISNIC áskilja sér rétt til að hafna
skráningum erlendis frá sem ekki uppfylla gæðakröfur ISNIC um
fullnægjandi upplýsingar um rétthafann.
Ástæða breytinganna er að gera erlendum aðilum sem vilja skrá .is lén
kleift að eiga samskipti við þjónustuaðila á sínu svæði í stað þess að
verða að tilgreina íslenskan tengilið. Eftir sem áður geta erlendir
ríkisborgarar ekki skráð .is lén milliliðalaust.
Gott væri að fá um þetta umræðu á Domain listanum.
Í lokin má geta þess að banni við milliliðalausri skráningu erlendra
aðila á sænska rótarléninu .se hefur verið aflétt með öllu, og löngu
áður hafði sama breyting átt sér stað með .dk (danska) rótarlénið.
Eftir stendur að .no (Noregur) leyfir ekki einstaklingum að skrá lén
og .fi (Finnland) býr enn við mjög strangar reglur.
ISNIC vill nútímavæða skráninguna án þess að láta af háum gæðakröfum
nema síður sé.
Kveðja,
Jens Pétur Jensen hagfr.
framkvæmdastjóri Internet á Íslandi hf. (ISNIC)
Tæknigarði, Dunhaga 7
107 Reykjavik.
Vefir: www.isnic.is, modernus.is og rix.is