ISNIC mun innan tíðar hætta að senda tilkynningar um ný lén inn á domain
umræðulistann. Þessar tilkynningar hafa hingað til verið sendar nokkrum
dögum eftir að lén er skráð og eins og staðan er í dag þá eru þessar
upplýsingar
oft orðnar úreltar þegar tilkynningin er loksins send.
Einnig hafa borist ítrekaðar kvartanir yfir því að við séum að
tilkynna um
þjónustu viðskiptavina sem eiga jafnvel að vera leyndarmál.
Engar athugasemdir bárust er ISNIC vakti umræðu á þessu í ágúst.
/Óli
--
Olafur Osvaldsson
Systems Administrator
Internet a Islandi hf.
Email: oli(a)isnic.is
Tel: +354 525-5291