Vegna niðurfellingar á kröfu um vörumerki erlendra rétthafa .is léna teljum við
að skerpa þurfi á körfum ISNIC til upplýsinga um rétthafa léna og reyna
þannig að koma í veg fyrir að áreiðanleiki lénaskráninga í rétthafaskrá ISNIC
versni til muna.
Þessar breytingar hafa í raun ekki áhrif á aðra en erlenda rétthafa og
umboðsmenn þeirra...
Hér er lagt til að þetta verði gert með tvennum hætti:
(1) að áskilja ISNIC rétt til þess að loka lénum sem augljóslega hafa
rangt/villandi skráðan rétthafa. Athugið að hér myndi einungis vera um
heimild að ræða, ISNIC myndi ekki fylgjast með þessu fyrirfram (það er
hlutverk umboðsmanna) heldur einungis skoða málið ef ábendingar berast.
(2) að gera ríkari körfur til umboðsmanna erlendra rétthafa og krefjast
þess að tengiliður rétthafa erlendra léna sé einn af skráðum umboðsmönnum, ekki
bara einhver íslensk kennitala.
Tillaga er því gerð um eftirfarandi breytingar á reglum um skráningu .is léna:
"1.1.16. Upplýsingar í rétthafaskrá
Rétthafi og tengiliðir bera ábyrgð á að réttar upplýsingar séu skráðar í
rétthafaskrá ISNIC. ISNIC uppfærir nöfn íslenskra rétthafa og tengiliða
samkvæmt þjóðskrá og fyrirtækjaskrá daglega. ISNIC áskilur sér rétt til
að uppfæra heimilisföng hjá íslenskum rétthöfum og tengiliðum til samræmis
við þjóðskrá eða fyrirtækjaskrá í þeim tilfellum þegar gögn send í
bréfapósti eru endursend til ISNIC."
Við þessa grein bætist
"ISNIC áskilur sér rétt til að fara fram á lagfæringu á skráningu
léns ef upplýsingar um rétthafa eru augljóslega rangar. Verði tengiliður
rétthafa ekki við slíkri beiðni áskilur ISNIC sér rétt til að loka viðkomandi
léni"
8. Brottfall léna
þarna bætist við
"8.7 Reynist upplýsingar um rétthafa léns augljóslega rangar getur ISNIC lokað
léni viðkomandi. Hafi lén verið lokað í 60 daga hjá ISNIC er það afskráð og afmáð,
réttur yfir léni fellur niður og lénið er laust til skráningar á ný.
Vegna umboðsmanna eru gerðar eftirfarandi tillögur um breytingar. Þessar
breytingar miða við að í samningi ISNIC við umboðsmenn verði kveðið á
um skyldur þeirra gagnvart því að rétthafi sé skráður á fullnæjandi hátt.
"1.1.9. Umboðsmaður
Umboðsmaður er sá aðili sem kemur fram fyrir hönd erlends rétthafa. Umboðsmaður
gerir sérstakan samning við ISNIC þar sem tilgreind eru réttindi og skyldur
samningsaðila."
Þessi grein verði
"1.1.9. Umboðsmaður
Umboðsmaður er sá aðili sem kemur fram fyrir hönd erlends rétthafa og hefur
gert sérstakan samning við ISNIC þar sem tilgreind eru réttindi og skyldur
samningsaðila."
Við grein "2.3. Erlendir umsækjendur" bætist
"2.3.1 Einungis umboðsmenn sem gert hafa samning við ISNIC geta verið
tengiliðir rétthafa léna sem skráð eru á erlenda rétthafa."
--
Marius Olafsson
ISNIC ltd. http://www.isnic.is
Taeknigardi +354 525 4747
Dunhaga 5 marius(a)isnic.is
Reykjavik ICELAND