Stjórn ISNIC hefur ákveðið að lækka verulega gjöld vegna
stofnunar og endurnýjunar á lénum með sérstöfum í þeim
tilfellum er sami aðili skráir lén stafsett bæði með og
án íslenskra sérstafa.
Við skráningu á léni með íslenskum sérstöfum er kannað
hvort sami aðili hafi þegar skráð "tilsvarandi" lén án
íslenskra sérstafa. Með "tilsvarandi" er átt við lén sem
til verður þegar séríslenskir stafir IDN lénsins eru
umritaðir skv eftirfarandi töflu:
þ -> th á -> a í -> i
æ -> ae é -> e ó -> o
ö -> o ý -> y
ð -> d ú -> u
Ef lénið sem þannig er myndað úr léni með séríslenskum
stöfum er skráð á sama rétthafa er veittur 90% afsláttur
af bæði stofngjaldi og árgjaldi.
Gjaldskrá vegna stofnunar og endurnýjunar léna frá og með
17. maí 2005.
Stofngjald
Vegna stofnunar á léni. Innifalið í stofngjaldi er árgjald
fyrsta árið.
a) Stofngjald léns án sérstafs, áéðíóúýþæö, er kr. 12.450.-
b) Veittur er 50% afsláttur vegna skráningar á léni sem
inniheldur sérstaf, stofngjald með 50% afslætti er kr.
6.225,-
c) Veittur er 90% afsláttur vegna skráningar á léni með
sérstöfum ef rétthafi léns er þegar skráður rétthafi
tilsvarandi léns án íslenskra stafa, stofngjald með
90% afslætti er kr. 1.245,-
Árgjald
Árlegt endurnýjunargjald vegna léns.
a) Árgjald léns án sérstafs, áéðíóúýþæö, er kr. 7.918,-
b) Veittur er 50% afsláttur af árgjaldi léns sem inniheldur
sérstaf, árgjald með 50% afslætti er kr. 3.959,-
c) Veittur er 90% afsláttur af árgjaldi léns með sérstöfum
ef rétthafi léns er þegar skráður rétthafi tilsvarandi
léns án íslenskra stafa, árgjald með 90% afslætti er
kr. 792,-
--
Helgi Jonsson, framkvæmdastjóri (Manager) hjons(a)isnic.is
Internet Iceland - ISNIC
Taeknigardur phone +354-525-4950
Dunhagi 5 fax +354-561-0999
IS-107 Reykjavik
Iceland homepage www.isnic.is