Ágætu félagar,
Þótt flestir ykkar hafi sennilega frétt nú þegar fannst okkur
viðeigandi að láta ykkur vita hér líka. Afsakanir til þeirra sem fá þetta
í tveimur eintökum.
Í siðustu viku var áralöngu baráttumáli ISNIC loksins landað með
uppsetningu á K-rótarþjóni RIPE ("anycast instance") við RIX. Margir af þeim
sem tengdir eru RIX hafa þegar gengið frá samtengingu, og aðrir að vinna í
því. -- Menn geta notað CAOS RR til að prófa hvar þeirra K-root er niðurkomin:
dig +norec @k.root-servers.net chaos txt id.server (sést reyndar líka á
ping rtt :-)
Læt hér fylgja fréttatilkynningu frá ISNIC/RIPE sem send verður fjölmiðlum
í tilefni þessa:
--
Marius
---------------------------
Fréttatilkynning
K-rótarþjónn settur upp á Íslandi.
Þann 14. október sl. luku RIPE NCC (Réseaux IP Européens Network Coordination Centre)
og Internet á Íslandi hf. (ISNIC) við að setja upp spegileintak ("mirror instance")
af einum af rótarnafnaþjónum Netsins. Þetta eintak er sett upp við skiptipunkt
íslenskrar netumferðar (RIX - Reykavík Internet Exchange) í Tæknigarði við Dunhaga.
Rótarnafnaþjónn K er einn af 13 rótarnafnaþjónum Netsins sem sjá um að vísa
uppflettingum léna á Netinu rétta leið. Þessir þjónar eru þannig mikilvægur
grunnþáttur í virkni netsamskipta í heiminum. Rótarnafnaþjónarnir mynda miðhluta
lénakerfis Netsins (DNS) sem notað er til að varpa nöfnum sem menn nota almennt
yfir í hin eiginlegu vistföng á netinu sem tölvur og hugbúnaður nota til að
komast leiðar sinnar.
K þjónninn í Reykjavík er nýjasta eintakið af þeim sem RIPE NCC hefur sett upp
undanfarið. Til að dreifa þessum eintökum um heiminn er notuð ný IP tækni
(IP fjölvarp, "anycasting"). Með þessu móti fæst mjög örugg og dreifð tenging,
sem er ónæmari fyrir ýmsum tegundum rekstartruflana, heldur en hefðbundnari
leiðir til að tryggja rekstraröryggi.
Vegna tenginga Íslands við umheiminn, er sérlega mikilvægt fyrir netrekstraraðila
hér á landi að hafa greiðan aðgang að a.m.k einum rótarþjóni. Eðli þessarar tækni
er þannig að missi menn alveg samband við alla rótarþjóna, verður að lokum einnig
erfiðleikum bundið að hafa samband innanlands. ISNIC hefur þvi unnið að
undirbúningi þess að fá eintak af rótarþjóni til landsins í tvö ár. K þjónninn
varð fyrir valinu og sem fyrr segir lauk þeirri vinnu með uppsetingu hans við RIX.
RIPE NCC hefur rekið K þjóninn í London síðan 1997, og síðan 2003 hafa verið
sett upp eintök af K í Amsterdam, Frankfurt, Aþenu, Doha og Mílanó, og nú
síðast í Reykjavík.
Frekari upplýsingar um K rótarþjóninn má finna á http:/k.root-servers.org/,
um RIPE NCC á http://ripe.net/, um Internet á Íslandi (ISNIC) á http://isnic.is/ og um
Reykjavík Internet Exchange (RIX) á http://rix.is/.
---------------------------
Gott, gilt og gamalt practice imho, en ég var svona að segja það sem mér
finnst að *gæti* orðið veruleiki, þeas. ekkert MX record. Amk. sýnist
mér þróunin vera orðin sú að menn notist við WHOIS upplýsingar þegar
verið er að koma abuse upplýsingum til skila. Flest sjálvirk kerfi sem
ég hef komist í tæri við notast við whois, ekki DNS.
Varðandi það að þú beinir abuse & postmaster@viðskiptavinur á þig er svo
annað dæmi. Fyrir mér er það ólöglegt, nema þú takir það væntanlega
fram að þú fáir póst á abuse & postmaster og kannski fleiri netföng hjá
þínum viðskiptavin.
-soffi-
Baldur Gislason wrote:
> Reyndar gera mail RFC ráð fyrir því að ef ekkert MX record er fyrir hendi
> þá eigi vél sem A recordið fyrir domainið vísar á, að taka við póstinum
> ef ég man rétt.
> Það gera allar reglur ráð fyrir því að bæði postmaster@domain og
abuse@domain
> séu alltaf til.
> Það er bara standard procedure hjá mér á vefhýsingarþjónunum að búa til
> alias fyrir postmaster og abuse á nýjum domainum, sem bendir á
postmaster og abuse
> hjá hýsingaraðilanum, sem svo aftur eru aliasar á mig.
>
> Baldur
>
> On Mon, Feb 28, 2005 at 08:23:17AM +0000, Kristinn Soffanias
Runarsson wrote:
>
>> Miðað við áttina sem þessi umræða er komin út í þá vildi ég benda
Svavari á að það er hægt að skrá Role object sem tengilið við (alla
afaik) tengiliði léns.
>> Varðandi topicið, er ég sammála Guðbirni. Mörg lén sem eru skráð í
dag hafa aldrei verið hugsuð til póstsendinga eða móttöku og miðað við
magn pósts sem að væri rejectað, þá held að það mætti frekar bara sleppa
MX recordi *og málið er dautt* eins og einhver sagði.
>>
>> kv,
>> -soffi-
>>
>>
>> Svavar Lúthersson wrote:
>>
>>
>>> Sælir aftur,
>>>
>>> "Í því tilviki er varla líklegt að postmaster virki?"
>>> - Var að tala um þessi "custom" netföng önnur en postmaster.
>>>
>>> "Ekkert sem hindrar aðila í að birta postmaster sem tengiliða netfang."
>>> - Það sem mér finnst pirrandi er þegar aðilarnir gera það ekki.
Hvað er svona erfitt við að stofna postmaster netfang fyrir lénið sem að
forwardar síðan póstinum á alla viðkomandi starfsmenn? Þá þarf engu að
breyta í whois, Isnic eða öðrum samskiptaleiðum þegar einhver nýr tekur
við stöðunni, eingöngu breyta forwardinu á póstþjóninum þegar þarf.
Hversu margir eru með það á áætlun sinni að líta yfir whois upplýsingar
og breyta þeim ef þörf er á, þegar þeir taka við nýrri stöðu í
fyrirtæki? T.d. eru netföngin abuse, www og hostmaster í víðri notkun og
ég held að þau reynist ágætlega. Það tekur miklu styttri tíma að breyta
forwardi á netfangi en að breyta t.d. whois upplýsingum, vefupplýsingum,
tilkynningar til annara starfsmanna og svo framvegis.
>>>
>>> "Efast um að dns væri rétta leiðin. Whois er þarna einmitt til þess."
>>> - Whois er fínt ef að það væri alltaf breytt (sjá að ofan). En
þarna var ég að hugsa um sparnaðinn fyrir þig ef þú værir að búa til
nýja zone skrá og þurfa bara að skilgreina eina færslu eins og þú
nefndir áður og þá þyrftirðu ekkert að skilgreina MX færslu og síðan
setja upp póstþjóninn þegar þú getur bara gert eina línu og þetta væri
komið. Það væri kannski hægt að setja í staðlanna færslu sem héti
"postmaster" og hún væri skilgreind með postmaster@<annað_lén> og öllum
postmaster pósti væri beint þangað.
>>>
>>> Kannski betra að fá álit hinna á listanum áður en við ræðum þetta
nánar...
>>>
>>> Með kveðju,
>>> Svavar Lúthersson (svavarl(a)stuff.is)
>>>
>>> ----- Original Message ----- From: "Guðbjörn S. Hreinsson"
<gsh(a)centrum.is>
>>> To: "'Svavar Lúthersson'" <svavarl(a)stuff.is>; <domain(a)isnic.is>
>>> Sent: Sunday, February 27, 2005 5:54 PM
>>> Subject: RE: [Domain] postmaster kröfur vegna léna undir .is
>>>
>>>
>>>
>>>
>>>
>>>> Það er mitt álit, að krafan um postmaster@<lén> sé enn þá réttmæt. Það
>>>> gerist stundum að aðrar leiðir eru ekki aðgengilegar, t.d. netföng
í whois
>>>> eða þau sem finnast á netinu virka alls ekki. Hef tekið eftir því
að mörg
>>>> fyrirtæki skilgreina oft í whois sérstakan starfsmann sem á að sjá um
>>>> tengd mál en þau munu ekkert virka ef að starfsmaðurinn vinnur ekki
>>>> lengur fyrir fyrirtækið.
>>>
>>>
>>>
>>> Í því tilviki er varla líklegt að postmaster virki?
>>>
>>>
>>>> Álit mitt er því að postmaster@<lén> er því miklu fýsilegra en
"custom"
>>>> netföng en þó er í lagi að blanda þessu saman og láta t.d. postmaster
>>>> forwardast á þá sem sjá um póstinn. Auk þess er alltaf gott að
hafa eitt
>>>> netfang sem maður veit að virkar í staðinn fyrir að þurfa að
fletta því
>>>> sífellt upp. Bara til að bæta við umræðuna, þá finnst mér að fyrirtæki
>>>> eigi
>>>> ekkert að setja netföng starfsmanna beint í whois eða aðrar
>>>> samskiptaleiðir,
>>>> heldur láta föstu netföngin forwarda póstinum á viðkomandi
starfsmann eða
>>>> láta alltaf viðkomandi starfsmann fá lykilorðið fyrir póstboxið
(sem að er
>>>> alltaf breytt eftir að starfsmaður sem hefur aðgang að því hættir hjá
>>>> fyrirtækinu). Starfsmenn myndu samt sem áður hafa sér netföng ef fólki
>>>> langar að hafa samband við þá beint án afskipta vinnufélaganna.
>>>
>>>
>>>
>>> Ekkert sem hindrar aðila í að birta postmaster sem tengiliða netfang.
>>>
>>>
>>>> Hægt væri að forðast að þurfa að setja MX færslu fyrir lén, ef það
væri
>>>> hægt
>>>> að skilgreina í DNS færslu hver sér um jafngildi postmaster fyrir
lénið ef
>>>> netfangið er undir öðru léni. Sú aðferð myndi samt krefjast
breytinga á
>>>> núverandi staðli svo best ég veit, en ég efast um að þeir taki
þetta inn
>>>> bara sí svona.
>>>
>>>
>>>
>>> Efast um að dns væri rétta leiðin. Whois er þarna einmitt til þess.
>>> -GSH
>>>
>>>
>>> _______________________________________________
>>> Domain mailing list
>>> Domain(a)lists.isnic.is
>>> http://lists.isnic.is/mailman/listinfo/domain
>>
>>
>>
>> _______________________________________________
>> Domain mailing list
>> Domain(a)lists.isnic.is
>> http://lists.isnic.is/mailman/listinfo/domain
>>
>
>