Ágætu félagar.
Bara að minna ykkur á morgun 1. júlí 2004 byrjar ISNIC að taka
við skráningu lénnafna sem innihalda séríslenska stafi.
Fram til 31. desember 2004 hafa aðilar sem þegar hafa skráð
lén forgang á skráningu léna með séríslenska stafi samanber
bráðabirgðaákvæði 14 í reglum um úthlutun .IS léna.
Sjá <http://www.isnic.is/domain/rules.php#14.>
Athuga ber að nöfn með séríslenska stafi hefur enn sem
komið er *mjög takmörkuð* not. Ástæðan er sú að enn vantar
stuðning við slík sértákn í almennan hugbúnað sem notendur
nota við netsamskipti. Til dæmis er ekki hægt að nota séríslenska
stafi í netföng og þar með erfiðleikum bundið að senda
eða taka á móti tölvupósti ef séríslensk tákn
koma fyrir í lénnafnshluta netfangs.
Spurning um íslenska stafi í lénanöfnum sé næstum jafngömul
skráningu .IS léna hér á landi en skráning hófst árið 1986.
Ekki var unnt að skrá lén með séríslenska stafi í nöfnum
þar sem staðla um það hvernig það skuli gert vantaði. Uppúr 1999
hófst vinna við slíka staðla á vegum IETF og lauk þeirri vinnu
snemma árs 2003, með birtingu þriggja RFC staðla sem skilgreina
hvernig tæknilega skuli staðið að þessari skráningu, RFC3090, RFC3091
og RFC3092. Sjá <http://ftp.rhnet.is/pub/rfc/rfc3490.txt>
<http://ftp.rhnet.is/pub/rfc/rfc3491.txt>
<http://ftp.rhnet.is/pub/rfc/rfc3492.txt>
Sem dæmi um skráningu léns með séríslenska stafi í nafni, þá hefur verið
skráð lénið 'ísnic.is' (sem í raun er skráð sem 'xn--snic-upa.is' í DNS).
Menn geta prófað að fletta þvi upp til að sjá hvernig skráning þess lítur
út, bæði í DNS og í rétthafaskrá ISNIC.
Ef einhverjar spurningar vakna er um að gera að hafa
samband við hostmaster(a)isnic.is
--
Marius Olafsson
ISNIC ltd. http://www.isnic.is
Taeknigardi +354 525 4747
Dunhaga 5 marius(a)isnic.is
Reykjavik ICELAND