Sett hefur verið upp þjónusta á TCP porti 4343 á whois.isnic.is þar
sem hægt er að athuga hvort lén sé þegar skráð.
Þjónustan tekur við lénnafni einu og sér á línu og skilar niðurstöðu ef
lénið er skráð eða tilkynningu ef það er ekki skráð.
Fljótlega munum við svo setja upp aðgangstakmarkanir að whois.isnic.is
porti 43 og uppflettingum á vefsvæði sem takmarka fjölda fyrirspurna á
klst. en þær takmarkanir ná ekki yfir þessa nýju þjónustu.
Ef einhverjar spurningar vakna er um að gera að hafa samband við
hostmaster(a)isnic.is
/Óli
--
Ólafur Osvaldsson
Kerfisstjóri
Internet á Íslandi hf.
Sími: 525-5291
Email: oli(a)isnic.is