Nú er hægt að afskrá lén með því að fara á "Mín Síða", velja lénið og
ýta á "Afskrá" hnappinn.
Við þetta er sendur tölvupóstur á Tengilið Rétthafa lénsins og þarf
hann að fylgja vefslóð sem kemur í tölvupóstinum til þess að
staðfesta beiðnina.
Við þessa breytingu er ekki lengur hægt að segja upp léni með
tölvupósti eða með bréfi, ef tengiliður rétthafa er ekki viðlátinn til
þess að staðfesta afskráningu þarf fyrst að skipta um tengilið rétthafa
og sér hann svo um afskráninguna.
Allir tengiliðir léns nema Zone-Contact geta óskað eftir afskráningu
léns en aðeins Tengiliður Rétthafa getur staðfest beiðnina.
Vinsamlega látið hostmaster(a)isnic.is vita ef einhverjar óeðlilegar
villur koma upp.
/Óli
--
Ólafur Osvaldsson
Kerfisstjóri
Internet á Íslandi hf.
Sími: 525-5291
Email: oli(a)isnic.is